[prenta uppsett í dálka] 160. fundur
Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti hefur átt fund með formönnum þingflokka vegna umræðna sem urðu fyrir skömmu. Það er ósk forseta að haldið verði við þá áætlun sem gerð var á fundi forseta og formanna þingflokka fyrr í dag þannig að umræðu um fjármagnstekjuskatt verði fram haldið nú. Að þeirri umræðu lokinni verði tekin fyrir ýmis önnur mál á dagskránni en gert hlé fyrir þingflokksfundi, vonandi sem fyrst, og það hlé standi í þrjá stundarfjórðunga. Að þingflokksfundum loknum verði rætt í sameiningu um framhald þingstarfanna í dag en gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu fljótlega að loknum þingflokksfundum.
Forseti lítur svo á að um þessa skipan mála sé sæmilegt samkomulag við formenn þingflokka.