[prenta uppsett í dálka] 160. fundur
Forseti (Sturla Böðvarsson):
Forseti vill vekja athygli hv. þm. á því að hér hefur verið borin upp ósk um að formenn þingflokka verði kallaðir til fundar. Þess vegna vildi forseti óska eftir því að hv. þm. styttu umræður um stjórn fundarins sem mest má verða þannig að hver mínúta sé sem best nýtt á þessu mikilvæga kvöldi. En nokkrir hv. þm. og hæstv. ráðherra hafa óskað að taka til máls.