Kosning í fastanefndir skv. 13. gr. þingskapa:

Þriðjudaginn 03. október 1995, kl. 13:35:40 (11)

1995-10-03 13:35:40# 120. lþ. 1.2 fundur 5#B kosning í fastanefndir skv. 13. gr. þingskapa:#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti mun í framhaldi af kjöri fastanefnda beita sér fyrir því sem fyrr að gerð verði áætlun um fundatíma nefndanna. Ætlun forseta er að slík fundaáætlun liggi fyrir á morgun miðvikudag og geti nefndirnar þá komið saman til síns fyrsta fundar samkvæmt þeirri áætlun frá og með næstu viku nema nefndarformenn óski að halda fundi í nefndum í þessari viku og verður þá til þeirra funda boðað sérstaklega.