Lyfjalög

Fimmtudaginn 05. október 1995, kl. 12:50:48 (57)

1995-10-05 12:50:48# 120. lþ. 3.1 fundur 21. mál: #A lyfjalög# (gildistaka ákvæða um stofnun lyfjabúða o.fl.) frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Síðasta ræða hv. þm. var alveg óskiljanleg. Hann spyr einfaldrar spurningar og fær svör við spurningunni og þá snýr hann út úr, út og suður bara til að eiga síðasta orðið.

Nú hefur hv. þm. tækifæri til að koma einu sinni enn til að hafa allra síðasta orðið.