Tilkynning um dagskrá

Fimmtudaginn 19. október 1995, kl. 13:50:01 (460)

1995-10-19 13:50:01# 120. lþ. 17.98 fundur 59#B tilkynning um dagskrá#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Eins og hv. þingmenn sjá eru fjögur mál á dagskrá þessa fundar og forseti gerir sér vonir um að umræðu um þau öll megi ljúka á þessum fundi. Ef þörf er á verður fundur í kvöld og ef ekki tekst að ljúka þeim á þessum degi þá verður seinni fundur í fyrramálið.