Flutningur höfuðstöðva Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja

Miðvikudaginn 01. nóvember 1995, kl. 14:48:03 (593)

1995-11-01 14:48:03# 120. lþ. 23.7 fundur 114. mál: #A flutningur höfuðstöðva Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., SP
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur


[14:48]

Sólveig Pétursdóttir:

Virðulegi forseti. Ég vil láta þess getið að allsherjarnefnd fór í heimsókn nú á dögunum til Landhelgisgæslunnar og þar voru ýmis mál rædd, m.a. efni þessarar fsp., þ.e. um flutning stofnunarinnar til Suðurnesja. Þá kom fram að þessi flutningur væri ef til vill ekki svo einfalt mál þótt vissulega yrði það miklu hagkvæmara og skipulagslega séð betra að hafa starfsemi Gæslunnar alla á einum stað. Varðandi flutning þá þyrfti að taka svo margt til athugunar, t.d. hafnaraðstöðu. En það var tekið sérstaklega fram við okkur að hún væri mjög góð hér í Reykjavík, eins og reyndar hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson benti á hér áðan.

Ég vildi bara koma þessum athugasemdum á framfæri í tengslum við þessa fsp., en auðvitað koma hér fjölda mörg önnur sjónarmið til athugunar eins og reyndar aðrir hv. þm. og hæstv. dómsmrh. hafa bent á.