Framhaldsskólar

Fimmtudaginn 02. nóvember 1995, kl. 12:55:57 (640)

1995-11-02 12:55:57# 120. lþ. 25.2 fundur 94. mál: #A framhaldsskólar# (heildarlög) frv., SAÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 25. fundur


[12:55]

Sigríður A. Þórðardóttir (andsvar):

Herra forseti. Það er alrangt, hv. þm., að þess gæti varðandi þessa grein frv. sem lýtur að bóknámsbrautunum. Það er þvert á móti heilmikill sveigjanleiki fólginn í því að hægt er að hafa mismunandi kjörsvið.