Skýrsla forsætisráðherra um Byggðastofnun 1994

Fimmtudaginn 09. nóvember 1995, kl. 15:29:49 (848)

1995-11-09 15:29:49# 120. lþ. 32.6 fundur 73#B skýrsla forsætisráðherra um Byggðastofnun 1994# (munnl. skýrsla), KHG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur


[15:29]

Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir að taka það sérstaklega fram að því væri ekki beint til mín eða félaga minna að reifa þessi sjónarmið sem hann var að gagnrýna. En það kom líka fram í máli hans að hann myndi ekki hverjir ættu sökina. Það segir mér kannski allt sem segja þarf. Hann gefur út syndakvittun fyrir mig og félaga mína en man ekki eftir neinum þeirra sem haldið hafa fram þeim sjónarmiðum sem hann gagnrýnir. Og það segir það sem segja þarf.