Skýrsla forsætisráðherra um Byggðastofnun 1994

Fimmtudaginn 09. nóvember 1995, kl. 16:30:53 (859)

1995-11-09 16:30:53# 120. lþ. 32.6 fundur 73#B skýrsla forsætisráðherra um Byggðastofnun 1994# (munnl. skýrsla), RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur


[16:30]

Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):

Ég þakka 10. þm. Reykjaness fyrir skýr svör um þetta efni og varpa fram þeirri spurningu til forsrh. hvað honum finnist um þær hugmyndir að þróa Byggðastofnun í þá átt að hún veiti frekari styrki til svæðanna sem aftur hefðu með verkefnin sjálf að gera.