Veiðileyfagjald

Föstudaginn 17. nóvember 1995, kl. 11:36:27 (961)

1995-11-17 11:36:27# 120. lþ. 34.9 fundur 30. mál: #A veiðileyfagjald# þál., EKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 34. fundur


[11:36]

Einar K. Guðfinnsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alltaf hægt að stunda ýmsar fimleikakúnstir eins og hv. þm. gerði varðandi þetta mál. En auðvitað er öllum ljóst, jafnvel hv. 9. þm. Reykv., Jóni Baldvini Hannibalssyni, að hér er mjög ólíku saman að jafna. Hér er ekki um landbúnað að ræða eða takmarkaðan innflutning á landbúnaðarvörum, sem ég veit raunar að hv. þm. finnst fulltakmarkaður. Hér er verið að bera saman allsendis ólíka hluti og þess vegna er þetta varla annað en fremur veikburða innlegg af hálfu hv. þm. Grundvallaratriðið er að við erum annars vegar að fjalla um meginauðlind íslensku þjóðarinnar, sjávarútveginn, og margvísleg áhrif af gjaldtöku af því tagi sem hér hefur verið vakið máls á, og hins vegar um afar veikburða hugmyndir um innflutning við sérstakar aðstæður á landbúnaðarafurðum. Og því er auðvitað engan veginn saman að jafna.