Innritunargjöld á sjúkrahús

Miðvikudaginn 29. nóvember 1995, kl. 17:33:14 (1461)

1995-11-29 17:33:14# 120. lþ. 44.91 fundur 105#B innritunargjöld á sjúkrahús# (umræður utan dagskrár), ÖS (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur


[17:33]

Össur Skarphéðinsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vek eftirtekt á því að búið er að boða til fundar en það er alveg ljóst að nokkrir þingflokkar eru enn á fundum og vegna þess vantar fulltrúa nokkurra þingflokka. Ég vek t.d. eftirtekt á því að enginn fulltrúi Sjálfstfl. er viðstaddur umræðuna ef frá er talinn virðulegur forseti. Mér finnst það ekki eðlileg málsferðferð.

(Forseti (ÓE): Forseti mun gera viðvart um að fundur sé að hefjast eða sé hafinn öllu heldur.)