Málefni samkynhneigðra

Miðvikudaginn 06. desember 1995, kl. 14:25:05 (1640)

1995-12-06 14:25:05# 120. lþ. 54.4 fundur 196. mál: #A málefni samkynhneigðra# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., dómsmrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur


[14:25]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Sem svar við fyrirspurn hv. 11. þm. Reykv. er það að segja að efni frumvarpsins sem er á lokastigi byggist á tillögum meiri hluta þeirrar nefndar sem um þessi mál fjallaði og hér hefur verið vitnað til. Um afgreiðslu málsins í þinginu get ég ekki sagt. Það er þingsins sjálfs að ákveða hversu hraða meðferð málið fær í þinginu.