Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Föstudaginn 08. desember 1995, kl. 11:58:51 (1739)

1995-12-08 11:58:51# 120. lþ. 58.4 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., SJS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 58. fundur


[11:58]

Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. forsrh. er afar sniðugur maður og snjall í útúrsnúningum eins og allir vita og þetta er út af fyrir sig alveg rétt hjá hæstv. forsrh. en það er bara ekki verið að gera það með þeim hætti sem ég var að óska eftir. Auðvitað er hægt að einfalda tilveruna með svona aðferðum en gera hana þá um leið verri en við viljum hafa hana. Mörg af þessum ákvæðum hefði ég af tvennu illu frekar viljað sjá áfram sem tímabundin skerðingarákvæði en varanlega uppgjöf gagnvart þeim hlutum sem þar eiga í hlut. Ef að líkum lætur verður hér á dagskrá á komandi árum frv. af þessu tagi þar sem verið er að krukka t.d. í marga þætti almannatryggingakerfisins eða atvinnuleysisbótaþáttinn eða annað því um líkt. Ég hefði frekar viljað heyra í svari hæstv. forsrh. að hann vildi taka það til skoðunar að framvegis verði þetta lagt fram í tveimur, þremur, fjórum meginfrumvörpum en ekki einum svona feiknalegum bandormi þar sem safnað verði saman efnislega skyldum lagaákvæðum, t.d. í eitt frv. öllum þeim sem heyra undir heilbr.- og trmrn. og félmrn., í annað frv. öllum þeim sem heyra undir samgrn. og varða framkvæmdaþætti o.s.frv. Þannig gætum við kannski komist af með að hafa þessi frumvörp tvö eða þrjú, í mesta lagi fjögur og það væri aðeins viðráðanlegra fyrir menn að skoða þau og ræða.