[prenta uppsett í dálka] 60. fundur
[16:16]
Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu sem ég tel að hafi verið mjög góð og gagnleg. Til mín hefur verið beint tveim spurningum. Guðný Guðbjörnsdóttir spurði um samræminguna varðandi áfengis- og fíkniefnavarnir. Ég held að samræmingunni náum við einmitt með því að dómsmrn., félmrn., menntmrn. og heilbrrn. vinni saman að þessum málum og það eru fulltrúar þessara hópa sem skipa þennan nýja forvarnasjóð. Ég tel að þannig náum við samræmingunni.
Hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir spurði varðandi forvarnarsjóðinn, þetta 1% gjald af innfluttu áfengi. Við erum að tala um nýtt fjármagn, 25--30 millj. í heildina til þessa málaflokks.
Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson kom ekki með beina fyrirspurn heldur aðvörunarorð sem ráðherrar hlustuðu að sjálfsögðu á.