[prenta uppsett í dálka] 65. fundur
[22:58]
Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. umhvrh. fyrir að bregðast hér við og deila með mér áhyggjum eins og mér fannst vera inntak í hans andsvari. Að því er varðar Náttúruverndarráð og fjárveitingarnar til þess þá er það svo að þau ein tíu verkefni sem ég kynnti að hugmyndin væri af hálfu ráðsins að ráðast í og kosta þó ekki nema 5 millj. kr. en eru öll mikilsverð komast ekki áfram vegna fjárskorts. Það er alveg ljóst. Ráðið þarf að verja af liðnum Önnur gjöld í verkefni sem brýn teljast en það bitnar í rauninni bara á frumkostnaði sem mjög erfitt er að spara. Ráðið hefur reynt að bæta sinn rekstur mjög á undanförnum árum.
Varðandi Hollustuvernd ríkisins þá finnst mér þetta ekki vera rétt afgreiðsla þó ég taki undir með hæstv. ráðherra að stjórnsýsluendurskoðunin er sjálfsagt verkefni og ég ætla bara að vona að það takist vel til í þeim efnum þannig að stofnunin standi betur í fæturna á eftir. En það vantar eitthvert tannfé hér inn við fjárlagaafgreiðsluna. Ég bið um að það verði athugað í sambandi við afgreiðslu fjárlaganna til þess að bæta aðeins úr því hörmungarástandi sem hér ríkir. Samningurinn sem nefndur var og kemur fram í breytingartillögunni er í gildi. Sá ágæti samningur, sagði hæstv. ráðherra, ég man eftir því að við vorum samferða í því að greiða atkvæði gegn honum en við búum við hann. Þess vegna verðum við að sjá til þess, ef við ætlum ekki að brjóta á honum æ ofan í æ, að við séum fær um að sinna lágmarksskyldum samkvæmt því máli.