Fjárlög 1996

Föstudaginn 15. desember 1995, kl. 13:55:55 (1999)

1995-12-15 13:55:55# 120. lþ. 66.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1996# frv., MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur


[13:55]

Margrét Frímannsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vildi aðeins spyrja hv. formann fjárln. varðandi aukinn hagvöxt og endurmat á atvinnuleysisprósentunni, hvað þetta þýði í beinni aukningu tekna ríkissjóðs á næsta ári og hvort það hafi komið fram hve mikið megi gera ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs hafi aukist.