[11:13]
Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Hér er verið að gera breytingu á viðmiðun lífeyris- og tryggingabóta og er nú skírskotað til launa, verðlags og efnahagsþróunar. Ég geng út frá því að þessi breyting muni ekki hafa í för með sér neina skerðingu frá fyrra fyrirkomulagi og einvörðungu á þeirri forsendu segi ég já.