Ferill 5. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 5 . mál.


5. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um málefni ferðaþjónustu.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



    Er þess að vænta að mótuð verði stefna í málefnum ferðaþjónustunnar á þessu kjörtímabili? Ef svo er, hvernig hyggst ríkisstjórnin þá standa að slíkri vinnu?
    Er fyrirhuguð heildarendurskoðun lagaákvæða sem snerta ferðaþjónustuna á þessu kjörtímabili?