Ferill 37. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 37 . mál.


37. Fyrirspurn


til iðnaðarráðherra um skaðabætur til bænda við Þingvallavatn.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.


    Með hvaða hætti var bændum, sem land eiga að Þingvallavatni, bætt skert veiði í kjölfar virkjunar Efra-Sogs árið 1959?
    Komu sérstakar bætur fyrir slysið 17. júní 1959 þegar bráðabirgðastífla fyrir mynni Efra-Sogs brast?