Ferill 78. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 78 . mál.


78. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um mengun af brennisteinssamböndum.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Hvað veldur því að Ísland hefur ekki staðfest bókanir við samninginn frá 1979 um loftmengun sem berst langar leiðir milli landa, þær er varða frekari minnkun á losun brennisteins, eins og Hollustuvernd ríkisins hefur lagt til?
    Hvenær hyggst ríkisstjórnin undirrita þessar bókanir?