Ferill 120. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 120 . mál.


132. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.

Frá landbúnaðarnefnd.



1. gr.


    Í stað „1. nóvember 1995“ í A-lið ákvæðis til bráðabirgða með lögunum, sbr. 2. gr. laga nr. 99/1995, kemur: 1. desember 1995.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpi þessu er lagt til að heimild landbúnaðarráðherra til að fresta ákvörðun um heildargreiðslumark sauðfjárafurða fyrir verðlagsárið 1996–97 verði framlengd til 1. desember 1995, en samkvæmt lögum nr. 99/1995, sem samþykkt voru á vorþinginu, náði þessi frestunarheimild til 1. nóvember. Samkomulag hefur orðið í landbúnaðarnefnd um að flytja frumvarpið að höfðu samráði við ráðherra. Frestunin er talin óhjákvæmileg þar sem enn hefur ekki verið afgreitt frumvarp til laga um breytingu á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, nr. 99/1993, með síðari breytingum, 96. mál (þskj. 100). Það frumvarp var lagt fram í því skyni að lögfesta nauðsynlegar breytingar vegna ákvæða í samningi um sauðfjárframleiðslu milli landbúnaðarráðherra, f.h. ríkisstjórnar Íslands, og Bændasamtaka Íslands frá 1. október síðastliðnum og er það nú til umræðu í landbúnaðarnefnd.