Ferill 136. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 136 . mál.
162. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 120. löggjafarþingi 1995.)
1. gr.
Síðari málsliður 6. mgr. 28. gr. laganna fellur brott.
2. gr.
2. mgr. 34. gr. laganna orðast svo:
Að móttekinni álagningarskrá skv. 1. mgr. skal ríkisskattstjóri ákveða greiðslustöðu hvers gjaldanda með samanburði á álagningarskrá og skrá um staðgreiðslu á staðgreiðsluárinu, að teknu tilliti til álags skv. 121. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Frumvarp þetta er samið í framhaldi af áliti umboðsmanns Alþingis, í máli nr. 877/1993, þar sem umboðsmaður vekur athygli Alþingis og fjármálaráðherra á ákvæðum 6. mgr. 28. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sem kveður á um málskot til ríkisskattstjóra vegna álagsbeitingar á vanskilafé. Umboðsmaður telur nauðsynlegt að tekið verði til athugunar hvort ekki sé rétt að fela yfirskattanefnd með ótvíræðum hætti að fjalla um niðurfellingu álags skv. 6. mgr. 28. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Með hliðsjón af áliti umboðsmanns Alþingis er lagt til að ákvæði síðari málsliðar 6. mgr. 28. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, falli brott úr lögunum. Með því verður úrskurður skattstjóra um álag í staðgreiðslu kæranlegur til yfirskattanefndar og er það í samræmi við valdsvið sem nefndinni er afmarkað í lögum, sbr. 2. gr. laga nr. 30/1992, um yfirskattanefnd, en þar er sérstaklega tekið fram að valdsvið yfirskattanefndar nái til ákvörðunar skatta og gjalda samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Þá eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á 34. gr. með hliðsjón af breytingum sem lagðar eru til í frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum. Breytingin felst í því að lagt er til að í stað verðbóta á mismun álagningar og staðgreiðslu komi 2,5% álag.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.