Ferill 146. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 146 . mál.


173. Frumvarp til stjórnarskipunarlaga



um breyting á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, með síðari breytingum.

Flm.: Siv Friðleifsdóttir.



1. gr.

    51. gr. stjórnarskrárinnar orðast svo:
    Ráðherrar mega ekki eiga sæti á Alþingi. Þó eiga þeir rétt á að taka þátt í umræðum eins oft og þeir vilja og svara fyrirspurnum, en gæta verða þeir þingskapa.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Íslenskt réttarríki byggist á hugmyndum franskra umbótasinna á 18. öld um greiningu ríkisvaldsins í þrjá þætti, löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald, sbr. 2. gr. stjórnarskrárinnar. Hugsunin með slíkri skiptingu var að hver valdhafi um sig takmarkaði vald hins, en hver hluti ríkisvaldsins fyrir sig átti þó að vera sem sjálfstæðastur. Þó að stjórnarskrá okkar byggist á þessum hugmyndum gerir hún samt ráð fyrir að ráðherrar geti jafnframt verið alþingismenn. Aðskilnaður löggjafarvalds og framkvæmdarvalds er því í raun ekki eins mikill og 2. gr. stjórnarskrárinnar áskilur.
    Sagt er að stærsti hluti hinnar eiginlegu vinnu við þingmál fari fram í þingnefndum. Sú hefð hefur hins vegar skapast að ráðherrar eiga ekki sæti í nefndum þingsins. Núverandi fyrirkomulag leiðir því til þess að um sjötti hluti þingheims er ekki nema að litlu leyti virkur í þingstarfinu. Með þessu frumvarpi til stjórnarskipunarlaga er lagt til að ráðherrar geti ekki átt sæti á þingi þann tíma er þeir gegna ráðherradómi. Jafnhliða þeirri breytingu, sem frumvarpið mælir fyrir um, telur flutningsmaður rétt að skoða hvort ástæða sé til að fækka þingmönnum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin verði sú að um leið og forseti hefur skipað alþingismann ráðherra taki varamaður sæti ráðherrans á þingi. Ráðherra á hins vegar rétt á þingsæti sínu aftur jafnskjótt og hann lætur af ráðherradómi ef þing hefur ekki verið rofið og boðað til nýrra kosninga. Með þessu móti munu allir sem sæti eiga á Alþingi hverju sinni geta sinnt þeim skyldum sem á þeim hvíla. Hins vegar er áfram gert ráð fyrir að ráðherrar geti tekið þátt í umræðum á þingi og svarað fyrirspurnum samkvæmt nánari reglum sem settar yrðu þar um í þingsköpum. Sú breyting á stjórnarskránni, sem hér er lögð til, á sér hliðstæðu bæði í Noregi og Svíþjóð þar sem slíkt fyrirkomulag þykir hafa gefist mjög vel.
    Breytingar á stjórnarskránni eru ávallt vandmeðfarin mál. Flutningsmaður þessa frumvarps gerir ekki ráð fyrir að þær breytingar, sem hér eru lagðar til, verði samþykktar á þessu þingi. Það er samt löngu kominn tími til að þetta mál sé rætt af alvöru af þingmönnum sjálfum.