Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 176 . mál.


219. Fyrirspurn


til fjármálaráðherra um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.


    Hvernig miðar vinnu við „breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins sem tryggi öllum þeim kennurum og skólastjórnendum við grunnskóla, sem rétt hafa átt til aðildar að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, aðild að sjóðnum“ eins og segir orðrétt í 57. gr. laga um grunnskóla, nr. 66/1995?