Ferill 31. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 31 . mál.


222. Nefndarálit


um till. til þál. um mótmæli við kjarnorkutilraunum Frakka og Kínverja.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og er samstaða innan hennar um að leggja til að Alþingi ítreki mótmæli íslenskra stjórnvalda við kjarnorkutilraunum Frakka og Kínverja. Í flestum ríkjum heims hafa stjórnvöld og almenningur lýst yfir vonbrigðum með tilraunasprengingar Frakka og Kínverja og mótmælt þeim harðlega. Þau mótmæli hafa verið höfð að engu til þessa og í þessari viku sprengdu Frakkar fjórðu tilraunasprengju sína.
    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti nýlega með 95 atkvæðum gegn 12 að fordæma tilraunirnar. Þá sátu 45 ríki hjá við atkvæðagreiðsluna. Ísland greiddi atkvæði með tillögunni.
    Á þingi Alþjóðaþingmannasambandsins í Búkarest í október sl. var samþykkt harðorð ályktun gegn kjarnavopnatilraunum þessara ríkja og naut hún yfirgnæfandi stuðnings þingmanna alls staðar að úr heiminum, að undanskildum þeim ríkjum sem að undanförnu hafa staðið fyrir slíkum tilraunum. Ljóst er því að um allan heim er víðtæk andstaða gegn tilraununum.
    Á ráðstefnu um bannsamninginn gegn dreifingu kjarnavopna, sem fram fór fyrr á þessu ári, var mælst til þess að kjarnavopnaveldin gerðu sitt ýtrasta til að forðast tilraunir með kjarnavopn. Því er ekki unnt annað en að líta á tilraunasprengingarnar sem afturför, enda gætu þær torveldað viðræðurnar um samning um algjört bann við kjarnasprengingum í tilraunaskyni sem nú standa yfir í Genf. Alvarlegast er þó að tilraunir sem þessar geta stofnað heilsu manna og umhverfi í hættu á viðkomandi tilraunasvæði.
    Nefndin leggur því til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Tillgr. orðist svo:
    Alþingi ályktar að ítreka mótmæli íslenskra stjórnvalda við tilraunum Frakka og Kínverja með kjarnavopn. Alþingi felur ríkisstjórninni að halda áfram að beita sér fyrir og styðja aðgerðir á alþjóðavettvangi sem þrýsta á frönsk og kínversk stjórnvöld að breyta um stefnu og hætta við frekari kjarnorkuvopnatilraunir.

Alþingi, 22. nóv. 1995.


Geir H. Haarde,

Össur Skarphéðinsson,

Ólafur Ragnar Grímsson.

form.

frsm.


Jóhanna Sigurðardóttir.

Siv Friðleifsdóttir.

Árni M. Mathiesen.


Ólafur Örn Haraldsson.

Tómas Ingi Olrich.

Vilhjálmur Egilsson.