Ferill 211. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 211 . mál.


272. Tillaga til þingsályktunar



um könnun á nýtingu Krýsuvíkursvæðis.

Flm.: Hjálmar Árnason, Drífa Sigfúsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera úttekt á möguleikum Krýsuvíkursvæðisins í Gullbringusýslu á sviði iðnaðar, orku, ferðaþjónustu o.fl.

Greinargerð.


     Á Krýsuvíkursvæðinu virðast miklir möguleikar vannýttir. Þar er náttúrufegurð mikil, jarðhiti verulegur, stórt stöðuvatn og þannig má áfram telja. Margar athuganir hafa verið gerðar á svæðinu án þess að frekar hafi orðið úr nýtingu nema að óverulegu leyti.
    Reynslan af nýtingu Svartsengis á Suðurnesjum og Nesjavöllum í Árnessýslu sýnir að fjárfesting er fljót að skila sér. Þá virðist áhugi erlendra aðila fara vaxandi á því að fjárfesta í jarðhita og jarðefnum á Íslandi. Mikilvægt er að hafa svör á reiðum höndum ef fyrirspurnir berast frá erlendum fjárfestum.
    Árið 1975 var skilað skýrslu, unninni af bandarísku ráðgjafarfyrirtæki, til samgönguráðuneytisins. Skýrslugerðin var kostuð af Sameinuðu þjóðunum. Þar komu fram mótaðar tillögur um Krýsuvík sem ferðamannastað. Jafnframt lágu fyrir loforð um fjárstuðning erlendis frá. Ekkert varð úr framkvæmdum.
    Þingsályktunartillagan felur í sér að ráðherrar ferðamála og iðnaðar láti gera úttekt á möguleikum Krýsuvíkursvæðisins með frekari uppbyggingu svæðisins í huga.