Ferill 136. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 136 . mál.


333. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 12. des.)



1. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:
    Í stað orðsins „sex“ í 2. mgr. kemur: fjóra.
    5. mgr. greinarinnar orðast svo:
                  Við endurgreiðslu skv. 1. og 2. mgr. skal bæta álagi sem skal vera 0,2% af endurgreiðslufjárhæð fyrir hvern byrjaðan mánuð frá því staðgreiðsla var innt af hendi og þar til endurgreiðsla fer fram.

2. gr.


    Síðari málsliður 6. mgr. 28. gr. laganna fellur brott.
    

3. gr.


    2. mgr. 34. gr. laganna orðast svo:
    Að móttekinni álagningarskrá skv. 1. mgr. skal ríkisskattstjóri ákveða greiðslustöðu hvers gjaldanda með samanburði á álagningarskrá og skrá um staðgreiðslu á staðgreiðsluárinu, að teknu tilliti til álags skv. 121. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

4. gr.


    Í stað orðsins „verðbóta“ í 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna kemur: álags.

5. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.