Ferill 171. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 171 . mál.


381. Nefndarálit



um frv. til l. um lagagildi viðaukasamnings milli ríkisstjórnar Íslands og Alusuisse-Lonza Holding Ltd. um álbræðslu við Straumsvík.

Frá minni hluta iðnaðarnefndar.



    Minni hlutinn flytur þrjár breytingartillögur á sérstöku þingskjali.
    Minni hlutinn telur að orkusamningurinn sé ásættanlegur miðað við aðstæður. Verðið stendur að öllum líkindum undir kostnaði fyrirtækisins og er ekki lægra en svo að unnt á að vera að knýja fram öruggt kostnaðarverð í næsta áfanga virkjana ef ákveðnar verða á næstunni. Verðið er vissulega lægra en æskilegt væri en taka verður tillit til þess að verulegt orkumagn er ónýtt í orkukerfi landsmanna.
    Í annan stað verður skattasamningurinn að teljast spor í rétta átt, sérstaklega þar sem ákvæði hans eru færð nær íslenskum skattalögum.
    Önnur atriði eru athugunarverð:
    Í fyrsta lagi er málsmeðferð vegna umhverfismála ábótavant. Hjörleifur Guttormsson alþingismaður hefur bent á fjölmörg veigamikil og alvarleg gagnrýnisatriði. Fram kom á fundi iðnaðarnefndar að sérfræðingar umhverfisráðuneytisins viðurkenna mörg mikilvægustu atriðin í gagnrýni Hjörleifs. Engu að síður vísaði meiri hluti stjórnar Hollustuverndar ríkisins málinu frá vegna aðildarskorts! Af þessum ástæðum telur minni hlutinn óhjákvæmilegt að betur verði farið í saumana á umhverfismálunum. Verði óháðum sérfræðingum falið að fjalla um málið og starfsleyfi álversstækkunarinnar endurmetið og endurútgefið að lokinni þessari athugun. Flutt er um þetta breytingartillaga um nýtt ákvæði til bráðabirgða.
    Í annan stað hefur komið fram við meðferð málsins í iðnaðarnefnd að samskiptum álversins við Hafnarfjarðarbæ er stórlega ábótavant. Verður ekki annað séð en nauðsynlegt sé að grípa til sérstakra ráðstafana til að bæta þessi samskipti í framtíðinni en þau eru afleit eins og sést af síðustu bréfaskriftum forráðamanna álversins til Hafnarfjarðarbæjar. Verður einnig að telja að hlutur iðnaðarráðuneytisins sé sérkennilegur í þessum efnum, en ráðuneytið lagðist í víking með álverinu gegn Hafnarfjarðarbæ eins og sést af bréfaskriftum sem birtar eru í fylgiskjali sem dreift er með nefndaráliti þessu. Ekki er flutt nein sérstök tillaga um endurbætur í þessum efnum en bent á nauðsyn þess að málið verði tekið til sérstakrar athugunar af iðnaðarráðuneytinu.
    Í þriðja lagi ber að nefna það hér að almenn þjóðfélagsleg áhrif af stækkun álversins eru í raun meiri og margslungnari en þau kunna að virðast á yfirborðinu. Staðreyndin er sú að auk hinna jákvæðu efnahagslegu áhrifa með fjölgun starfa mun stækkun álversins hafa þau áhrif að því fólki fjölgar á landsbyggðinni sem hugsar sér til hreyfings suður á bóginn. Veldur stækkun álversins þar litlu eða engu út af fyrir sig en þegar við bætast göng undir Hvalfjörð, að ekki sé minnst á aðrar hugsanlegar stóriðjuframkvæmdir á sama landsvæði, verða áhrifin meiri. Af þessum ástæðum er nauðsynlegt að huga að vandamálum dreifbýlisins. Þess vegna er flutt tillaga um bráðabirgðaákvæði í lögin þar sem gert er ráð fyrir því að Alþingi kjósi nefnd til að vinna að alhliða stefnumótun í atvinnumálum.
    Í fjórða lagi verður að viðurkenna að vinnuumhverfi í Straumsvík er ekki nægilega traust. Því til sannindamerkis nægir að vísa til skýrslu Vinnueftirlitsins sem birt er sem fylgiskjal með nefndaráliti þessu.
    Að öllu samanlögðu er ljóst að álverinu hefur ekki tekist vel að koma sér fyrir í íslensku þjóðfélagi og eru þá ónefnd þau atriði sem fyrir hálfum öðrum áratug urðu landskunn undir heitinu „hækkun í hafi“ þegar fyrirtækið var staðið að því að svindla á verðlagsupplýsingum til þess að draga úr skattagreiðslum sínum.
    Orkuverðið er, eins og áður sagði, ásættanlegt að mati minni hlutans. Hann mun því ekki greiða atkvæði gegn frumvarpinu. Hins vegar fer endanleg afstaða minni hlutans eftir því hversu ríkisstjórnarflokkarnir taka í þær breytingartillögur um ákvæði til bráðabirgða sem fluttar eru á sérstöku þingskjali. Þær eru þrjár; auk þeirra tveggja sem nefndar hafa verið er gerð sérstök tillaga um vinnu að stefnumótun í orku- og stóriðjumálun á grundvelli sjálfbærrar þróunar í umhverfismálum. Verður gerð gleggri grein fyrir þessum tillögum öllum í framsöguræðu minni hlutans.
    Stjórn Landsvirkjunar ákvað á fundi að óska eftir því að leynd hvíldi yfir tilteknum þáttum orkuverðsins. Hefur það mál verið rætt sérstaklega og verður sjálfsagt rætt nánar við 2. umræðu málsins. Formaður stjórnar Landsvirkjunar og framkvæmdastjóri fyrirtækisins tjáðu iðnaðarnefnd að slík leynd tíðkaðist almennt í samningum af þessu tagi og færst hefði í vöxt að leynd ríkti um einstök ákvæði orkusölusamninga. Formaður stjórnar Landsvirkjunar sagðist telja brýnt að slíkur trúnaður ríkti með hliðsjón af því að Landsvirkjun á nú í viðræðum við aðra aðila um orkusölu.
    Því er stundum haldið fram að orkuverð til almennings hafi hækkað vegna Blönduvirkjunar. Það hefur ekki gerst. Landsvirkjun hefur borið kostnaðinn í hallarekstri eftir að virkjunin var gangsett. Hallinn hefur að sjálfsögðu minnkað smátt og smátt eftir því sem notkun almenna markaðarins hefur aukist þótt sú aukning sé minni en gert var ráð fyrir þegar Blanda var virkjuð. Með nýjum samningum verður afkoma Landsvirkjunar 8 milljörðum kr. betri en ella hefði orðið eins og fram kom við 1. umræðu málsins.
    Það er rétt sem haldið hefur verið fram að afkoma Landsvirkjunar og þjóðarbúsins verður háðari álverði en áður, en engar líkur eru taldar á því að álverð verði svo lágt í framtíðinni að Landsvirkjun tapi á þeim samningum sem nú hafa verið gerðir. Samkvæmt þeim spám sem fyrir liggja á að fást ríflega kostnaðarverð fyrir raforkuna samkvæmt samningsdrögunum sem fyrir liggja vegna stækkunar álversins.
    Samningurinn um stækkun álversins í Straumsvík er sérkennilegur að því leyti að hann breytir gamla samningnum um leið. Það er aðalkostur nýja samningsins og gefur Íslendingum verulegar fjárhæðir frá því sem ella hefði verið. Voru nefndar tölur í þessu sambandi við 1. umræðu um frumvarpið.
    Mikil átök hafa verið um orkuverðið til Ísals, en verðið byrjaði í þremur millum á kílóvattstund. Hjörleifur Guttormsson fyrrverandi iðnaðarráðherra knúði fram breytingar á raforkuverðinu í stríði við innlenda aðila ekki síður en erlenda. Raunar hefði getað náðst meiri hækkun en raun varð á því iðnaðarráðherra Sjálfstæðisflokksins sem tók við af Hjörleifi gaf unna skák í endataflinu.

Umhverfisþátturinn.
    Þann 4. desember var haldinn fundur um málið í umhverfisnefnd Alþingis en þangað voru málin send til meðferðar að beiðni stjórnarandstöðunnar. Umhverfisnefnd fékk ekki neinn tíma til að fjalla um málið utan einn örstuttan fund. Beiðni um að doka við í nokkra daga og bíða greinargerða var hafnað og var málið afgreitt frá umhverfisnefnd með atkvæðum stjórnarliða án nokkurrar marktækrar umfjöllunar. Það verður að teljast hrein óhæfa hvernig nefndin fjallaði um mál þetta með tilliti til þess fordæmis sem slíkt getur haft fyrir önnur stórmál. Hjörleifur Guttormsson gerði fjölda athugasemda við umhverfisþátt álmálsins í bréfi er hann sendi formanni iðnaðarnefndar dags. 11. september sl. Talsmenn Hollustuverndar ríkisins komu á fund iðnaðarnefndar og svöruðu fyrirspurnum frá nefndarmönnum. Er skemmst frá því að segja að þeir staðfestu nær allar athugasemdir Hjörleifs.
    Fram kom í viðtali við talsmenn Hollustuverndar ríkisins að starfsleyfið sem gefið hefur verið út er fyrir álver með allt að 170 þúsund tonna álframleiðslu. Verði álverið stækkað þurfi að sækja um nýtt starfsleyfi. Viðurkennt var að tækni álversins væri ekki besta fáanlega tæknin en það væri álverinu mikilvægt að hafa sams konar tækni í stækkuninni og í því álveri sem fyrir er. Um losun flúoríðs kom fram að umhverfið hér á landi þyldi ef til vill meiri losun en besta tækni skilaði í hreinsun. Vothreinsun er pólitísk stefnumörkun, sögðu talsmenn Hollustuverndar, í Noregi og í Svíþjóð þar sem menn hafa miklar áhyggjur af súru regni. Ekki er að öllu leyti ástæða til að gera sömu kröfur hér á landi. Óskað var eftir áætlun um takmörkun á losun koltvísýrings hér á landi sem er sögð hafa verið lögð fyrir ríkisstjórnina í síðasta mánuði. Það skjal barst um það leyti sem gengið var frá nefndaráliti þessu.
    Fram kom að forráðamenn Hollustuverndar töldu nauðsynlegt að marka skýrar verkaskiptingu við útgáfu stafsleyfis og umhverfismats. Stundum fannst okkur að við værum að tví- og þrívinna hlutina, sögðu þeir.
    Fulltrúar frá umhverfisráðuneyti komu einnig á fund iðnaðarnefndar. Svöruðu þeir nokkrum spurningum og birtist skrifleg greinargerð þeirra sem fylgiskjal með frumvarpi þessu.
    Að öllu samanlögðu er nauðsynlegt að endurvinna starfsleyfið og er það því ein aðalbreytingartillaga okkar við frumvarp þetta. Með þessu er ekki varpað rýrð á starf þess fólks sem unnið hefur að málinu; því hafa hins vegar verið settar óeðlilegar pólitískar skorður að ekki sé fastar að orði kveðið. Sérstaklega vill þó minni hlutinn mótmæla vinnubrögðum meiri hluta stjórnar Hollustuverndar. Meiri hlutinn hafnaði sem kunnugt er erindi Hjörleifs Guttormssonar með þeim rökum að hann ætti ekki aðild að málinu. Minni hluti iðnaðarnefndar er ósammála því sjónarmiði og mótmælir því harðlega. Sérstaklega ber að mótmæla því að svokölluð úrskurðarnefnd hefur enn ekki fellt úrskurð í málinu. Á fundi iðnaðarnefndar viðurkenndu talsmenn Hollustuverndar að niðurstaða úrskurðarnefndarinnar gæti vitaskuld breytt málinu í grundvallaratriðum þannig að íslenska ríkið yrði skaðabótaskylt.

Samskiptin við Hafnfirðinga.
    Samskipti álversins við Hafnarfjarðarbæ hafa verið með ólíkindum. Ekki hafði fyrr verið lokið samningum um skatta o.fl. milli bæjarins og álversins er bréf barst frá álverinu þar sem varað er við byggð á áður skipulögðu byggingarsvæði í Hafnarfirði. Iðnaðarráðuneytið beit svo höfuðið af skömminni með því að taka undir bréf álversins án þess að séð verði að nauðsynlegt hafi verið fyrir ráðuneytið að bregðast þannig við, enda tók ráðuneytið bréf sitt til baka að hluta til. Formaður álviðræðunefndar Hafnarfjarðarbæjar sagði á fundi iðnaðarnefndar 12. desember að samskipti aðilanna væru enn í hnút. Það er vissulega ekki til að styrkja ímynd álversins hvernig forráðamenn þess kjósa að kom fram við Hafnfirðinga í þessu sambandi.
     Bréfaskipti Hafnarfjarðarbæjar og álversins birtast sem fylgiskjal IV með nefndaráliti þessu. Vakin skal athygli á því að Íslenska álfélagið sendir Hafnarfjarðarbæ bréf á ensku. Þá er einnig birt minnisblað um hlutdeild Hafnarfjarðar í tekjum Ísals.

Vinnueftirlitið.
    Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, kom fyrir nefndina. Kvartaði hann yfir því að innra öryggi og umhverfi væri ekki nægilega gott í álverinu. Sama dag og iðnaðarnefnd kom í álverið varð þar mjög alvarlegt vinnuslys. Ekki var þess getið við iðnaðarnefndarmenn sem verður að teljast sérkennilegt. Þetta var fjórða vinnuslysið af þessu tagi í álverinu og einn mannanna sem slösuðust á dögunum hafði einu sinni áður lent í svipuðu slysi. Forstjóri Vinnueftirlitsins kvaðst hafa sett sérstakan mann til þess að rannsaka þessi slys og aðdraganda þeirra. Þá kom fram að mengun er mikil innan húss í álverinu og asmatilfelli eru því miklu fleiri en í öðrum starfsgreinum. Fram hefur komið af hálfu Vinnueftirlitsins að vinnuumhverfi væri lakara í álverinu hér á landi en í sambærilegum fyrirtækjum erlendis og komu fram dæmi um það mál á fundinum.
    Að því er varðar skattamálin vísast til álits formanns efnahags- og viðskiptanefndar er barst iðnaðarnefnd í bréfi dags. 4. desember 1995.
    Afstaða minni hlutans til frumvarpsins ræðst af því hvaða afgreiðslu og undirtektir þær tillögur um orkumál, atvinnumál og umhverfismál fá, sem fluttar eru í formi breytingartillagna við frumvarpið.

Alþingi, 14. des. 1995.



Svavar Gestsson.




Fylgiskjöl:
    Umsögn meiri hluta umhverfisnefndar um frumvarpið.
    Svör umhverfisráðuneytisins við fyrirspurnum sem fram komu á fundi iðnaðarnefndar.
    Bréf Hjörleifs Guttormssonar til formanns iðnaðarnefndar með fylgiskjölum.
    Bréfaskipti forráðamanna álversins og Hafnarfjarðarbæjar.
    Vinnueftirlit ríkisins, skýrsla um vinnuslys í Straumsvík.
    Upplýsingar um álverið í Straumsvík eftir kynningarfund með iðnaðarnefnd.
    Framkvæmdaáætlun Íslands vegna rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.
    Þróun orkuverðs til Ísals frá 1971.