Ferill 147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 147 . mál.
387. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (VE, GunnlS, SP, PHB, VS, EOK).
Lokatöluliður 31. gr. laganna, sbr. b-lið 3. gr. laga nr. 30/1995, verður lokatöluliður A-liðar 1. mgr. 30. gr. laganna.
Í stað fjárhæðarinnar „75.000“ í 2. mgr. 67. gr. laganna kemur: 77.940.
Eftirfarandi breytingar verða á 84. gr. laganna:
Þó skal eignarskattur manna sem takmarkaða skattskyldu bera skv. 3. gr. reiknast þannig: Af fyrstu 3.651.749 kr. af eignarskattsstofni greiðist enginn skattur. Af eignarskattsstofni yfir 3.651.749 kr. greiðist 1,2%.
Eftirfarandi breytingar verða á bráðabirgðaákvæði I með lögum nr. 30/1995:
a. 1. málsl. b-liðar fellur brott.
b. Í stað dagsetninganna „1. júlí 1996“ og „31. desember 1996“ í 2. málsl. b-liðar koma: 1. janúar 1996 og 30. júní 1996.
c. C-liður fellur brott.
Eftirfarandi breytingar verða á bráðabirgðaákvæði II með lögum nr. 30/1995:
a. B-liður orðast svo:
Vegna launatímabila frá og með 1. janúar 1996 til og með 30. júní 1996 skal hámarkið vera 3% af fjárhæð skv. 2. mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr., sbr. 59. gr. Frádráttur samkvæmt þessum staflið kemur til framkvæmda við álagningu á árinu 1997.
b. C-liður fellur brott.
Ákvæði um frádrátt vegna greiddra iðgjalda launþega til lífeyrissjóða, sbr. 2. gr. laga nr. 30/1995, kemur til framkvæmda frá og með 1. júlí 1996.