Ferill 215. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 215 . mál.
440. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 97/1993, sbr. lög nr. 12/1994 og nr. 58/1995.
Frá félagsmálanefnd.
1. málsl. 26. gr. laganna hjóðar svo: Hámarkslánstími á fasteignaveðbréfum er húsbréfadeild kaupir skal vera 40 ár.
Á eftir 27. gr. laganna kemur ný grein, 27. gr. a, sem hljóðar svo:
Húsnæðismálastjórn er heimilt að veita lán úr Byggingarsjóði ríkisins til allt að 15 ára í því skyni að leysa úr tímabundnum greiðsluerfiðleikum hjá lánþegum fasteignaveðbréfa húsbréfadeildar og lánþegum Byggingarsjóðs ríkisins. Skilyrði er að greiðsluvandi stafi af óvæntum tímabundnum erfiðleikum vegna veikinda, slysa, minni atvinnu, atvinnuleysis eða af öðrum ófyrirséðum atvikum.
Húsnæðismálastjórn er heimilt, með sömu skilyrðum og um getur í 1. mgr., að fresta greiðslum hjá einstökum lánþegum fasteignaveðbréfa húsbréfadeildar og lánþegum Byggingarsjóðs ríkisins í allt að þrjú ár og leggjast þær greiðslur við höfuðstól skuldarinnar, enda þyki slík aðstoð líkleg til að koma í veg fyrir greiðsluvanda.
Lán skv. 1. mgr. og frestun á greiðslu skv. 2. mgr. geta farið saman.
Ráðherra setur nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis að fengnum tillögum húsnæðismálastjórnar.