Ferill 263. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 263 . mál.


470. Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 29/1963, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


1. gr.

    Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þeir starfsmenn Sjúkrahúss Reykjavíkur, sem við gildistöku laga þessara starfa hjá Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala, Reykjavík, og eiga aðild að sjóðnum, skulu eiga rétt til áframhaldandi aðildar að sjóðnum með óslitinni réttindaávinnslu frá þeim tíma sem Sjúkrahús Reykjavíkur tekur til starfa.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Lagafrumvarp þetta er lagt fram í tengslum við stofnun Sjúkrahúss Reykjavíkur sem tekur til starfa 1. janúar 1996 samkvæmt samningi ríkisins, Reykjavíkurborgar og Sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala.