Ferill 43. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 43 . mál.


490. Breytingartillaga



við frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1996.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (VE, VS, GMS, PHB, EOK, KPál).



    Við 5. gr. bætist nýr töluliður, 7. tölul., er orðist svo:
    Spölur hf., allt að 1.000 m.kr. vegna kostnaðar við gerð vegganga undir Hvalfjörð og tengingu þeirra við vegakerfið. Heimildin er veitt með því skilyrði að ríkissjóði standi til boða að kaupa hlutabréf Spalar hf. eigi síðar en árið 2018 og að staðfest kostnaðar- og tekjuáætlun sé við það miðuð að öllum greiðslum af lánum og innheimtu veggjalds verði lokið innan 30 ára eftir að veggöngin verða tekin í notkun.
    Af heimildinni má nýta 300 millj. kr. vegna kostnaðar af töfum á því að verkið hafi hafist og meiri undirbúningskostnaðar. 300 millj. kr. af heimildinni má nýta við verklok vegna mögulegs kostnaðarauka við verkið á verktíma. 400 millj. kr. af heimildinni má nýta vegna vegtenginga við göngin eftir því sem þörf krefur.