Ferill 273. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 273 . mál.
508. Frumvarp til laga
um veitingu prestakalla.
(Lagt fyrir Alþingi á 120. löggjafarþingi 1995–96.)
I. KAFLI
Um val á sóknarpresti.
1. gr.
Þegar nýtt prestakall er stofnað eða prestakall losnar auglýsir biskup kallið laust með fjögurra vikna umsóknarfresti.2. gr.
Að liðnum umsóknarfresti sendir biskup prófasti hlutaðeigandi prófastsdæmis, sé hann eigi umsækjandi, skrá yfir þá er sótt hafa ásamt skýrslu um aldur þeirra, námsferil, embættisferil og störf. Enn fremur lætur biskup í té nægilega marga atkvæðaseðla með nöfnum umsækjenda.Með erindi biskups skal fylgja umsögn hans um umsækjendur, byggð á niðurstöðu stöðunefndar.
3. gr.
Kirkjumálaráðherra skipar þriggja manna stöðunefnd til þriggja ára. Í nefndinni eiga sæti fulltrúi tilnefndur af Prestafélagi Íslands, annar tilnefndur af guðfræðideild Háskóla Íslands og einn tilnefndur af biskupi Íslands og sé hann formaður nefndarinnar. Nefndin skal meta hæfni kandídata til prestsembætta að lokinni starfsþjálfun þeirra og gefa biskupi rökstudda umsögn um umsækjendur um prestsembætti, um menntun þeirra, framhaldsnám og starfsferil.Kirkjumálaráðherra setur nánari reglur um störf nefndarinnar að höfðu samráði við biskup og stjórn Prestafélags Íslands.
4. gr.
Biskup felur prófasti að hafa umsjón með vali á sóknarpresti. Sé hlutaðeigandi prófastur umsækjandi um kallið eða vanhæfur að öðru leyti tilnefnir biskup annan prófast í hans stað.Prófastur kynnir kjörmönnum prestakallsins erindi biskups og umsögn um umsækjendur. Hann boðar kjörmenn til sameiginlegs fundar með hæfilegum fyrirvara.
Kjörmenn eru sóknarnefndarmenn og safnaðarfulltrúar og varamenn þeirra.
Prófastur skal tryggja öllum umsækjendum áheyrn hjá kjörmönnum. Heimilt er kjörmönnum að tilnefna viðræðunefnd til að ræða við umsækjendur og gera að því loknu tillögu til kjörfundar.
5. gr.
Kjörfund skal halda innan 14 daga frá því að prófastur kynnir kjörmönnum erindi biskups, sbr. 4. gr.Kjörfundur er lokaður og stýrir prófastur honum. Að lokinni framlagningu og athugun gagna fer fram val á umsækjanda þegar á þeim fundi eða í síðasta lagi innan tveggja sólarhringa ef ósk um frestun kemur fram frá kjörmanni eða prófasti.
Atkvæðagreiðslan er leynileg.
Prófastur afhendir hverjum kjörmanni atkvæðaseðil og setur kjörmaður kross fyrir framan nafn þess er hann velur. Að loknu vali eru atkvæði talin á kjörfundi. Ef umsækjandi er einn telst val hans bindandi hafi hann hlotið 2 / 3 atkvæða.
Ef umsækjendur eru fleiri nægir helmingur atkvæða.
Nú eru umsækjendur þrír eða fleiri og enginn hefur hlotið helming greiddra atkvæða og skal þá endurtaka valið bundið þannig að sá sem fæst atkvæði hefur hlotið við síðustu atkvæðagreiðslu fellur úr.
Nú er valið milli tveggja umsækjenda og hvorugur hlýtur helming greiddra atkvæða og er þá valið ekki bindandi.
Falli atkvæði jöfn á kjörfundi ræður hlutkesti.
Nú vill meiri hluti kjörmanna hafna umsækjendum með því að skila auðum atkvæðaseðli og er þá ráðherra óheimilt að veita embættið.
6. gr.
Að loknum kjörfundi skal prófastur hlutast til um að sóknarnefnd eða nefndir hlutaðeigandi prestakalls kynni á almennum safnaðarfundi eða á annan sannanlegan hátt, innan sjö daga frá því að fundi lauk, hver hafi verið valinn eða hverjir hafa hlotið flest atkvæði sé valið eigi bindandi.7. gr.
Nú berst skrifleg ósk um það frá minnst 25 af hundraði atkvæðisbærra sóknarbarna í prestakallinu, innan sjö daga frá því að niðurstöður voru kynntar, sbr. 6. gr., að almennar prestskosningar fari fram í prestakallinu og er þá skylt að verða við því. Fjöldi atkvæðisbærra manna miðast við þá sem eru skráðir í þjóðkirkjuna í prestakallinu samkvæmt íbúaskrár þjóðskrár 1. desember næstan á undan og náð hafa 16 ára aldri er kosning fer fram. Ef ágreiningur rís um hvort almenn kosning eigi að fara fram úrskurðar yfirkjörstjórn, sbr. 12. gr., um það. Framkvæmd kosningar fer fram eftir ákvæðum III. kafla laga þessara.8. gr.
Nú er ekki óskað eftir almennum kosningum, sbr. 7. gr., og skal þá prófastur senda biskupi afrit af gerðabók kjörfundar ásamt staðfestingu þess að niðurstöður hafi verið kynntar, sbr. 6. gr.Biskup sendir kirkjumálaráðherra niðurstöðu kjörfundar ásamt umsögn sinni.
Ráðherra veitir þeim embættið sem hlotið hefur bindandi val en ákvarðar að öðrum kosti veitingu, að fenginni tillögu biskups.
II. KAFLI
Um köllun.
9. gr.
Hafi enginn sótt um prestakallið, sbr. 1 gr., er kjörmönnum heimilt að kalla prest.10. gr.
Óski helmingur kjörmanna eða fleiri þess skriflega við prófast að kalla tiltekinn prest eða guðfræðikandídat tilkynnir hann það biskupi sem felur þá prófasti að boða kjörmenn prestakallsins á sameiginlegan fund innan viku.Samþykki meiri hluti kjörmanna að kalla tiltekinn mann til embættis sem lögum samkvæmt á rétt til prestsembættis í íslensku þjóðkirkjunni skal biskup birta köllunina þeim presti eða kandídat sem í hlut á. Taki hann köllun skal veita honum embættið en eigi lengur en til tveggja ára. Að þeim tíma liðnum skal embættið auglýst.
Sé prestur ekki kallaður setur ráðherra prest í embættið að tillögu biskups.
III. KAFLI
Um kosningu.
11. gr.
Jafnskjótt og prófastur hefur fengið í hendur ósk frá lögboðnum fjölda atkvæðisbærra manna í prestakallinu um almenna kosningu, sbr. 7. gr., skal hann hefja kosningarundirbúning.Biskup ákveður í samráði við prófast hvenær kosning skuli fara fram. Biskup hlutast til um prentun kjörseðla. Sendir hann prófasti hæfilegan fjölda kjörseðla. Prófastur sendir síðan kjörstjórnum. Á kjörseðla skal prenta nöfn umsækjenda í stafrófsröð.
Prófastur auglýsir hvenær og hvar kosning skuli fara fram og hverjir séu í kjöri. Nú er prófastur í kjöri og tilnefnir þá biskup annan í hans stað. Í prestakalli, þar sem eru fleiri en ein sókn, skal kosning fara fram í öllum sóknum á sama degi.
12. gr.
Í hverri sókn skal vera kjörstjórn skipuð þremur mönnum, kjörnum af sóknarnefnd á fyrsta fundi eftir hverjar kosningar til sóknarnefndar. Sóknarnefnd kýs formann kjörstjórnar.Heimilt er sóknarnefnd að skipta sókn í kjördeildir. Skal þá kjósa þriggja manna undirkjörstjórnir er annist framkvæmd kosninga í hverri kjördeild. Enn fremur er sóknarnefndum heimilt að sameinast um kjördeild að fengnu samþykki prófasts.
13. gr.
Í hverju prófastsdæmi skal vera yfirkjörstjórn skipuð prófasti og tveimur mönnum kjörnum af héraðsfundi til fjögurra ára í senn ásamt jafnmörgum varamönnum. Að jafnaði skal vera löglærður maður í yfirkjörstjórn.14. gr.
Kjörstjórn annast gerð kjörskrár í hverri sókn. Skal hún lögð fram eigi síðar en fjórum vikum fyrir kjördag.Kjörskrá skal liggja frammi til sýnis hið minnsta í tvær vikur á hentugum stað er kjörstjórn auglýsir samkvæmt því sem venja er að birta opinberar auglýsingar á þeim stað.
15. gr.
Hver sá sem kæra vill að einhvern vanti á kjörskrá eða sé ofaukið þar þarf að hafa afhent formanni kjörstjórnar kæru sína, ásamt rökum og gögnum máli sínu til stuðnings, eigi síðar en tveimur vikum fyrir kjördag. Sé kæran um það að einhver sé á skrá tekinn sem ekki hafi rétt til að standa þar skal formaður senda þeim sem yfir er kært eftirrit af kærunni.16. gr.
Aðfinnslur þær við kjörskrána, sem fram eru komnar, skal hlutaðeigandi kjörstjórn úrskurða um í síðasta lagi viku fyrir kjördag. Skal gefa þeim er kæran varðar kost á að tjá sig og koma að gögnum áður en kæran er tekin til úrskurðar.Úrskurði kjörstjórnar má áfrýja til yfirkjörstjórnar. Hún skal hafa úrskurðað um fram komnar kærur degi fyrir kjördag. Eftir þetta verður engin breyting gerð á kjörskránni.
17. gr.
Á kjörskrá skal taka þá sem voru í íslensku þjóðkirkjunni og áttu lögheimili í prestakallinu 1. desember næstan á undan og hafa náð 16 ára aldri þegar kosning fer fram, sbr. 7. og 10. gr. laga nr. 25/1985.18. gr.
Þeir sem staddir eru eða gera ráð fyrir að verða staddir utan sinnar sóknar þegar kosning fer fram og geta af þeim sökum ekki sótt kjörfund hafa heimild til að greiða atkvæði utan kjörfundar samkvæmt þeim reglum sem settar eru í lögum þessum.19. gr.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram hjá formönnum kjörstjórna eða öðrum úr kjörstjórn er formaður tilnefnir.Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur hafist þá er tvær vikur eru til kjördags.
Kjörstjórn auglýsir í samráði við prófast hvar og hvenær atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fari fram.
Heimilt er að binda atkvæðagreiðslu við ákveðinn tíma á degi hverjum. Hún skal þó eigi standa skemur en klukkustund hverju sinni. Tilgreina skal í fundargerðabók hverjir greiði atkvæði utan kjörfundar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið ákveður gerð atkvæðaseðla fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar og kveður nánar á um framkvæmd hennar.
20. gr.
Þegar að lokinni kosningu sendir kjörstjórn yfirkjörstjórn kjörkassa, fundargerðir og önnur kjörgögn. Talning atkvæða fer fram hjá yfirkjörstjórn er hún hefur fengið öll kjörgögn í hendur. Yfirkjörstjórn tilkynnir biskupi úrslit kosningar og sendir honum afrit úr gerðabók. Biskup sendir kirkjumálaráðherra úrslitin ásamt umsögn sinni.Hafi helmingur kjósenda í prestakalli greitt atkvæði og fái einhver umsækjenda meiri hluta greiddra atkvæða er kosningin bindandi og fær kjörinn prestur veitingarbréf ráðherra fyrir prestakallinu. Að öðrum kosti ákvarðar ráðherra veitinguna.
21. gr.
Nú er aðeins einn umsækjandi í kjöri og fer þá fram kosning með sama hætti. Kjósendur sem vilja hafna honum skila auðum atkvæðaseðli.Greiði helmingur kjósenda atkvæði en umsækjandi fær ekki fullan helming greiddra atkvæða er óheimilt að veita honum embættið.
22. gr.
Prestskosningar má kæra skriflega fyrir yfirkjörstjórn innan viku frá því að kosning fór fram. Getur yfirkjörstjórn ógilt kosninguna og fyrirskipað nýja ef verulegir gallar eru á undirbúningi eða framkvæmd hennar.Áður en yfirkjörstjórn úrskurðar skal hún leita umsagnar kjörstjórna. Úrskurði yfirkjörstjórnar má áfrýja til nefndar er í eiga sæti biskup og tveir menn tilnefndir af kirkjumálaráðherra.
23. gr.
Með þeim frávikum sem lög þessi ákveða og eftir því sem við getur átt skulu lög um kosningar til Alþingis gilda um framkvæmd prestskosninga.24. gr.
Með lögum þessum eru numin úr gildi lög um veitingu prestakalla, nr. 44 30. mars 1987.25. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Kirkjumálaráðherra skipaði 8. ágúst 1995 nefnd til að endurskoða gildandi lög um veitingu prestakalla, nr. 44 30. mars 1987. Í skipunarbréfi ráðherra var tekið fram að í ljós hafi komið að sum ákvæði laganna séu vandskýrð þegar beita á þeim í framkvæmd og að ágreiningur hafi risið um túlkun þeirra.
Í nefndina voru skipuð: Markús Örn Antonsson framkvæmdastjóri, formaður, Baldur Kristjánsson biskupsritari, Geir Waage sóknarprestur í Reykholti, Guðríður Eiríksdóttir sóknarnefndarformaður á Akureyri, Karl Sigurbjörnsson sóknarprestur í Reykjavík og Sváfnir Sveinbjarnarson prófastur á Breiðabólstað. Ritari nefndarinnar var Hjalti Zóphóníasson skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
Frumvarpið var kynnt og lagt fram til umfjöllunar á Kirkjuþingi 1995. Kirkjuþing lagði til ýmsar breytingar á því og verður helstu breytinga getið í athugasemdum við einstakar greinar frumvarpsins eftir því efni standa til. Margar þeirra snertu minni háttar efnisatriði.
Helstu breytingar samkvæmt frumvarpinu.
Með lögum um veitingu prestakalla, nr. 44/1987, var horfið frá því fyrirkomulagi, sem tíðkast hafði frá árinu 1886, að sóknarprestar væru kosnir af sóknarbörnum í almennum kosningum. Til ársins 1987 voru í gildi lög nr. 32/1915, um veitingu prestakalla. Samkvæmt þeim lögum gilti sú regla að þegar prestakall varð laust skyldi biskup auglýsa það laust til umsóknar og síðan var stofnað til almennra prestskosninga í prestakallinu.
Samkvæmt núgildandi lögum frá 1987 er val á sóknarpresti í höndum kjörmanna, sem eru sóknarnefndarmenn og varamenn þeirra, en tilskilinn fjöldi sóknarbarna getur krafist þess, að almennar prestskosningar fari fram eftir val kjörmanna. Með lögum þessum voru lögfestar reglur sem fólu í sér miklar breytingar frá eldri lögum. Helsta breytingin var að hverfa frá allsherjarreglu um almennar prestskosningar en fjölga þess í stað valkostum við veitingu prestakalla. Eru valkostirnir eftirfarandi:
1. Val. Staða er auglýst laus til umsóknar og síðan velja kjörmenn prest úr hópi umsækjenda með leynilegu kjöri.
2. Köllun. Tiltekinn prestur er kallaður án auglýsingar, enda séu 3/4 kjörmanna einhuga um það.
3. Almenn kosning. Staða er auglýst og síðan fara fram almennar kosningar, enda hafi 25% atkvæðisbærra sóknarbarna farið fram á slíka kosningu.
Álitaefni hefur þótt hvora regluna, um köllun eða val, eigi frekar að viðhafa. Í þessu sambandi var því nauðsynlegt að kanna nánar hver vilji löggjafans hefði verið. Helstu lögskýringargögn hvað þetta varðar eru fyrst og fremst greinargerð með lagafrumvarpinu, framsöguræða með því, svo og umræður á Alþingi við meðferð málsins.
Í athugasemdum við frumvarp það sem varð að gildandi lögum sagði að gert væri ráð fyrir því sem aðalreglu að kjörmenn velji presta með leyfilegu vali. Sami skilningur kom fram hjá t.d. Jóni Helgasyni, dóms- og kirkjumálaráðherra, við 1. umræðu á Alþingi, en þar segir hann orðrétt: „..... Meginreglan verði að prestar verði kosnir af svokölluðum kjörmönnum“.
Þá er gert ráð fyrir köllun prests. Ljóst verður að telja að henni eigi síður að beita en meginreglunni, en hvergi er þó tilgreint við hvaða aðstæður hún eigi við. Eina skilyrðið virðist vera að ef 3/4 kjörmanna verða ásáttir um að viðhafa þessa aðferð þá megi kalla prest án auglýsingar.
Þegar sérstakri nefnd var falið af kirkjumálaráðherra árið 1990 að endurskoða lög um veitingu prestakalla var beinlínis tekið fram að sumir hafi viljað túlka orðalag 1. gr. á þann hátt að köllun skyldi vera „primær“ á undan auglýsingu, en slíkt mun ekki hafa vakað fyrir höfundum þess frumvarps er varð að lögum nr. 44/1987.
Nefndin, sem samdi frumvarp þetta, ákvað að afmarka verkefni sitt nú við þau atriði núgildandi laga, sem verið hafa óljós og túlkuð á mismunandi hátt, en láta annað standa óbreytt, enda þótt einstakir nefndarmenn hafi tjáð sig um nauðsyn á breyttum ráðningarskilyrðum presta, t.d. afnámi æviráðningar og endurskoðun á ákvæðum um ráðningu aðstoðarpresta o.fl. Breytingartillögur nefndarinnar snerta því aðallega I. kafla núgildandi laga og lagfæringar til samræmis á II. kafla þeirra. Hins vegar er III. kafli, um kosningu, látinn standa óbreyttur.
Nefndin var einhuga um að leggja til breytingar á lögunum frá 1987 sem feli í sér fortakslaust ákvæði um að auglýsa beri laus prestaköll til umsóknar. Með þessu taldi nefndin að við veitingu prestsembætta beri að gæta samræmis við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 38/1954, og stjórnsýslulög og almenn viðhorf sem uppi eru í þjóðfélaginu um að jafnræðisregla skuli í heiðri höfð. Nefndin taldi nauðsynlegt að réttur umsækjenda verði betur tryggður en áður. Ákvæði um heimild til köllunar prests verði aðeins beitt ef engar umsóknir berast við auglýsingu.
Þá varð það niðurstaða nefndarinnar að ekki beri að raska þeirri skipan, sem nú er á veitingu prestsembætta, enda þótt þau sjónarmið komi oft fram að kirkjustjórnin eigi að hafa þar meiri áhrif en nú er. Nefndin taldi nauðsynlegt að hafa forsöguna í huga og þá gagnrýni, sem fram kom, á fráhvarf frá almennum prestskosningum. Því væri nauðsynlegt að tryggja áfram þau beinu áhrif, sem fulltrúar safnaðarins hafa, á val á presti sínum á kjörmannafundum.
Í frumvarpinu felst það nýmæli að biskup hafi sér til ráðuneytis sérstaka hæfnisnefnd, sem eftir tillögu Kirkjuþings verður kölluð stöðunefnd, til að gefa biskupi rökstudda umsögn sína um umsækjendur. Aldrei hafa fleiri guðfræðingar verið reiðubúnir til þjónustu en nú og í guðfræðinámi eru á annað hundrað nemendur. Þess vegna verða margir um þau brauð, er losna á næstu árum. Með ákvæðinu um stöðunefnd er áhersla lögð á að menntun, starfsreynsla og almenn hæfni skuli virt og metin þegar stöður eru veittar. Stöðunefndin verði skipuð fulltrúum biskups, Guðfræðideildar Háskóla Íslands og Prestafélags Íslands. Kirkjumálaráðherra setji nánari reglur um störf nefndarinnar.
Nefndarmenn voru á einu máli um allar þær tillögur, sem fram koma í frumvarpinu.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í greininni eru tekin af öll tvímæli um að laus prestaköll skuli ávallt auglýsa til umsóknar.
Um 2. gr.
Biskup á þess kost að koma á framfæri frekari upplýsingum eða umsögn en fram kemur í umsögn stöðunefndar í skrá þeirri sem hann skal láta í té.
Um 3. gr.
Sett er nýtt ákvæði um stöðunefnd er meti umsóknir út frá faglegum sjónarmiðum en taki einnig tillit til sérstakra staðbundinna aðstæðna í viðkomandi prestakalli eins og gert er ráð fyrir að skilgreint verði í reglugerð. Í umsögn nefndarinnar er gert ráð fyrir að komi fram hvort umsækjendur séu hæfir til þjónustu eða eftir atvikum óhæfir. Ekki eru sett ákvæði um að stöðunefndin raði umsækjendum en heldur ekki útilokað að í nánari reglum, sem kirkjumálaráðherra setur, verði kveðið á um það.
Um 4. gr.
Hér er skilgreint hlutverk prófasts við kynningu á umsóknum fyrir kjörmönnum og boðun kjörmannafundar. Gert er ráð fyrir að gögn málsins verði send kjörmönnum til kynningar áður en þeir koma til formlegs fundar.
Í 4. mgr. er tekið fram að prófastur skuli tryggja öllum umsækjendum áheyrn hjá kjörmönnum en það ekki skilgreint nánar því að ólík úrræði geta við átt eftir aðstæðum. T.d. er ekki talið eiga við að setja reglu um að allir umsækjendur haldi kynningarmessur í prestakallinu þar eð erfitt verði um vik ef tugir umsækjenda eru um hvert embætti. Í því augnamiði að auðvelda kjörmönnum enn frekar val sitt og opna leið til þess að staðbundin sjónarmið geti komið skýrar fram en í umsögn stöðunefndar er tekið fram að kjörmenn geti tilnefnt úr sínum hópi fulltrúa til að ræða við umsækjendur og gera að svo búnu tillögu til kjörfundar.
Um 5. gr.
Kveðið er á um að kjörfundur, þar sem umsækjandi er valinn í leynilegri atkvæðagreiðslu, fari fram eigi síðar en hálfum mánuði eftir að prófastur sendir kjörmönnum gögn málsins til kynningar. Um framkvæmd kjörfundar og kosninguna gilda ákvæði núgildandi laga óbreytt. Þó er nú tekið fram að falli atkvæði jöfn á kjörfundi ráði hlutkesti. Þykir þetta nauðsynlegt í ljósi þess að á kjörfundi er tala kjörmanna jöfn ef allir mæta. Um aðferð við hlutkesti og önnur tæknileg atriði varðandi frágang kjörgagna er rétt að fjalla ítarlegar í reglugerð. Kirkjuþing taldi hins vegar réttara að val skyldi ekki verða bindandi ef tveir væru jafnir, en rétt þykir að viðhafa hlutkesti.
Nefndin lagði til að öll gögn málsins, þar með taldar umsagnir biskups, stöðunefndar og viðræðunefndar kjörmanna, skuli gerð opinber, þegar atkvæðagreiðslu kjörfundar væri lokið, þannig að umsækjendur gætu þá haft aðgang að þeim. Kirkjuþing ályktaði að fella þetta ákvæði niður og hefur það sjónarmið verið tekið til greina.
Um 6. gr.
Hér er aðeins breytt einu orði, þ.e. í stað „kjörmannafundi“ kemur : kjörfundi.
Um 7. gr.
Greinin er efnislega samhljóða ákvæðum 5. gr. gildandi laga.
Um 8. gr.
Greinin er efnislega samhljóða ákvæðum 6. gr. gildandi laga.
Um 9. gr.
Greinin kveður á um þá veigamiklu breytingu að köllun prests skuli einvörðungu beitt ef enginn hafi sótt um prestakallið.
Um 10. gr.
Þessi grein er efnislega samhljóða 2. og 3. mgr. 7. gr. núgildandi laga að því undanskildu að í 2. mgr. er gert ráð fyrir að samþykki meiri hluta kjörmanna nægi, í stað tveggja þriðju áður, til að kalla tiltekinn mann til embættis. Enn fremur að köllun sé til tveggja ára en ekki fjögurra eins og áður. Að loknu tveggja ára tímabilinu beri að auglýsa prestakallið að nýju.
Þá er í 3. mgr. gert ráð fyrir að ráðherra setji prest í embætti að tillögu biskups hafi enginn sótt um og enginn verið kallaður.
Um III. kafla.
Engar efnisbreytingar hafa verið gerðar á greinum þessa kafla, en röð þeirra breytist þannig að 8. gr. núgildandi laga verður 11. gr. o.s.frv. Texta hefur verið breytt hvað málfar snertir á nokkrum stöðum.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um veitingu prestakalla.
Frumvarp þetta var samið af nefnd sem skipuð var af kirkjumálaráðherra til að endurskoða núgildandi lög um veitingu prestakalla, nr. 44/1987. Meginbreytingar þessa frumvarps frá núgildandi lögum er að kveðið er skilyrðislaust á um auglýsingu stöðu og skipuð er þriggja manna stöðunefnd er meti umsóknir um prestaköll út frá faglegum sjónarmiðum. Aðrar beytingar miða að því að gera ákvæði núgildandi laga skýrari en í ljós hefur komið að sum þeirra eru vandskýrð þegar beita á þeim í framkvæmd og hefur ágreiningur risið um túlkun þeirra.
Að mati fjármálaráðuneytis eru kostnaðaráhrif frumvarpsins á ríkissjóð aðallega vegna hinnar nýju stöðunefndar en ætla má að árlegur kostnaður af henni geti númið 250–350 þús. kr. Auglýsingarkostnaður af lausum stöðum greiðist af biskupsstofu en önnur útgjöld er tengjast kjöri presta greiðast af söfnuðum. Talið er að kostnaðarauki sé óverulegur.