Ferill 298. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. –
298
. mál.
537. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um reglur um þátttöku barna og unglinga í happdrætti.
Frá Margréti Frímannsdóttur.
Hefur ráðherra í hyggju að beita sér fyrir breytingu á þeim reglum sem gilda um þátttöku barna og unglinga í hvers konar happdrætti, þar með taldir peningaspilakassar? Ef svo er, í hverju er sú breyting fólgin?
Eru þær reglur, sem hér gilda um þátttöku barna og unglinga í happdrætti og notkun á peningaspilakössum, í samræmi við það sem gerist annars staðar á Norðurlöndum? Ef ekki, í hverju er mismunurinn fólginn?
Hvernig er háttað eftirliti með því að þeim reglum, sem í gildi eru, sé framfylgt?
Hver eru viðurlög ef um vanrækslu á eftirliti er að ræða?