Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 335 . mál.
590. Skýrsla
Íslandsdeildar Norður-Atlantshafsþingsins fyrir árið 1995.
1. Inngangur.
Á árinu 1995 var öflug starfsemi innan Norður-Atlantshafsþingsins og tekið var á erfiðum málum er snerta framtíð NATO og skipan evrópskra öryggismála. Veröldin hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Hrun járntjaldsins á sínum tíma var vissulega fagnaðarefni og hefur haft í för með sér jákvæðar breytingar í alþjóðamálum. Það er hins vegar ljóst að þó að öryggishagsmunir hafi breyst á undanförnum árum á Evrópa nú við gífurleg öryggisvandamál að glíma.
Atlantshafsbandalagið hefur á undanförnum árum verið að laga sig að þeim nýju aðstæðum sem skapast hafa. Það hefur enn mikilvægu hlutverki að gegna í öryggismálum Evrópu. Af þeim stofnunum, sem starfandi eru á sviði öryggismála í Evrópu, nýtur NATO ótvírætt mestrar virðingar, ekki síst meðal ríkja Mið- og Austur-Evrópu. Með Norður-Atlantshafssamvinnuráðinu, sem stofnað var árið 1991, tók NATO mikilvægt skref í þá átt að bjóða ríki í Mið- og Austur-Evrópu velkomin í samfélag vestrænna ríkja. Þetta skref hafði mikla þýðingu fyrir samstarf við þessi ríki á sviði varnar- og öryggismála og hefur haft áhrif til aukins stöðugleika á svæðinu. Þetta samstarf var síðan enn aukið með áætlun NATO um Samstarf í þágu friðar. Þar sem NATO hefur mátt sem aðrar alþjóðastofnanir í Evrópu skortir má búast við að það taki enn frekar þátt í aðgerðum til að koma á friði í löndum utan bandalagsins, sbr. nýfengið hlutverk þess í Bosníu-Hersegovínu.
Atlantshafsbandalagið hefur mætt áskorunum sem það hefur staðið frammi fyrir á undanförnum árum með framsýni. Hefði NATO verið lagt niður við endalok kalda stríðsins hefði skapast tómarúm í öryggismálum í Evrópu sem leitt hefði til frekari óstöðugleika í álfunni. Evrópa þarf jafnmikið á samvinnu við Bandaríkin á sviði varnar- og öryggismála að halda núna og við stofnun NATO fyrir 47 árum.
Vissulega er stefna bandalagsins gagnvart nýjum aðstæðum enn til umræðu á vissum sviðum. Spurningar t.d. um hvenær skuli stækka bandalagið og hvaða ríki eigi að hljóta aðild, um hlutverk Rússa í öryggiskerfi Evrópu og um hugsanlegar aðgerðir utan NATO-svæðisins eru enn til umræðu. Það þýðir þó ekki að mikilvægi NATO hafi minnkað heldur að það sé lifandi bandalag sem tekst á við breytt umhverfi af sveigjanleika og hugmyndaauðgi.
Norður-Atlantshafsþingið var á árinu 1995 að fást við þær mikilvægu spurningar sem bandalagið stendur nú frammi fyrir og mun sú umræða vafalaust halda áfram á árinu 1996. Íslandsdeild Norður-Atlantshafsþingsins hefur í málflutningi sínum lagt ríka áherslu á mikilvægi Norður-Atlantshafstengslanna í evrópskum öryggismálum. Hún hefur ítrekað minnt á hvernig trúverðugleiki NATO hvílir einmitt á samstarfi Evrópu og Norður-Ameríku og að ekki megi missa sjónar á því á þessum umbreytingartímum þegar m.a. er mikið rætt um aukið sjálfstæði Evrópu í öryggis- og varnarmálum.
2. Almennt um Norður-Atlantshafsþingið.
Norður-Atlantshafsþingið er þingmannasamtök sem hafa allt frá árinu 1955 verið vettvangur þingmanna frá aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins þar sem þeir koma saman til að ræða sameiginleg áhuga- og áhyggjumál. Undanfarið hefur þingið þó bæði fjölgað í hópi sínum og víkkað út starfssvið sitt í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa í fyrrum Sovétríkjunum og í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu.
Fimmtán nýjum lýðræðisríkjum úr hópi fyrrum kommúnistaríkja hefur verið veitt aukaaðild að þinginu sem þýðir að þau geta nú tekið þátt í störfum og umræðum á þinginu sem beinast í auknum mæli að öryggismálum Evrópu í heild og að efnahagslegum og pólitískum vandamálum ásamt menningar- og umhverfismálum sem tengjast ríkjum Mið- og Austur-Evrópu. Með Rose-Roth áætluninni veitir þingið nú einnig virkan stuðning við þróun þingbundins lýðræðis í þessum ríkjum (sjá bls. 3).
3. Hlutverk og starfssvið þingsins.
Í Atlantshafssáttmálanum 1949 var ekki gert ráð fyrir þinglegri ráðgjafarsamkundu, en með tímanum jókst skilningur manna á því að nauðsyn væri á einhvers konar skipulegu samstarfi þjóðþinga í tengslum við og til stuðnings NATO. Þingið hefur því enga formlega stöðu innan bandalagsins en smám saman hefur komist á náin og virk samvinna á milli stofnananna.
Meginhlutverk þingsins er að upplýsa og efla samstöðu þjóðþinga á milli. Þingið gerir þingmönnum aðildarríkja bandalagsins og nú löggjöfum ríkja Mið- og Austur-Evrópu kleift að koma á framfæri áhuga- og áhyggjuefnum ríkja sinna og skiptast á upplýsingum um þau mismunandi viðhorf sem uppi eru í hinum ýmsu löndum og svæðum til mikilvægra sameiginlegra hagsmunamála. Fulltrúar á þingið eru kjörnir af þjóðþingum sínum samkvæmt aðferðum sem þjóðirnar ákveða. Á þinginu endurspeglast því afar breitt svið pólitískra skoðana.
Þingið kemur saman tvisvar á ári til allsherjarfundar, vorfundar sem stendur í þrjá daga og ársfundar er stendur í fimm daga. Fundir eru haldnir í aðildarríkjunum til skiptis í boði þjóðþinganna.
Starfsemi þingsins fer fram í fimm nefndum, stjórnmálanefnd, varnar- og öryggismálanefnd, efnahagsnefnd, vísinda- og tækninefnd og félagsmálanefnd. Þessar nefndir eru bæði vinnuhópar og meginvettvangur umræðna. Þær rannsaka og fjalla um samtímamál er koma upp á starfssviði þeirra. Óski nefnd þess að gera ítarlega rannsókn á tilteknu máli kýs hún undirnefnd til að afla um það upplýsinga.
Nefndarálit eru oftast sett fram í formi tillagna eða ályktana sem nefndin samþykkir og þingið greiðir síðan atkvæði um á allsherjarfundi. Tillögum er beint til Norður-Atlantshafsráðsins og í þeim er hvatt til tiltekinna aðgerða en ályktunum þingsins er beint til ríkisstjórna aðildarríkja. Á hverju ári tekur þingið til umræðu á allsherjarfundi sínum afmarkað efni sem er ofarlega á baugi.
Eitt af því sem gerir starfsemi þingsins einstæða er sambandið milli löggjafarþinga beggja vegna Atlantshafsins, hin svonefndu Atlantshafstengsl. Norður-Atlantshafsþingið hefur sérstaklega gert sér far um að styrkja tengslin við þingnefndir Bandaríkjaþings.
Þótt þingið sé óháð NATO hafa samskipti þingsins við bandalagið, sem fyrr segir, smám saman tekið á sig fastara form og meðal formlegra samskipta má nefna: Formlegt svar við tillögum þingsins af hálfu framkvæmdastjóra bandalagsins fyrir hönd Atlantshafsráðsins; ávarp framkvæmdastjóra NATO á haustfundum þingsins; aukafundi nefnda í Brussel í febrúarmánuði ár hvert til að greiða fyrir samskiptum við starfsmenn og embættismenn NATO og SHAPE (Supreme Headquarters Allied Powers in Europe — æðstu bækistöðvar bandamanna í Evrópu); og loks fundi milli forustumanna í þinginu og fulltrúa Atlantshafsráðsins til gagnkvæmra skoðanaskipta.
Til marks um aukin umsvif þingsins má benda á að það hefur á undanförnum árum aðstoðað við myndun ÖSE-þingsins. Þingið hefur átt þátt í undirbúningi fyrstu funda hinnar nýju stofnunar og látið henni ýmsa þjónustu í té.
4. Þróun samskipta við Mið- og Austur-Evrópu.
Eins og NATO sjálft hefur þingið orðið að endurskoða hlutverk sitt í ljósi örra breytinga á alþjóðavettvangi. Þótt enginn vafi leiki á þörf fyrir bandalagið og hið einstæða samband sem það felur í sér milli þjóða beggja vegna Atlantshafs er breytinga og aðlögunar þörf í ljósi þess að ekki er lengur til staðar sú skýra og yfirvofandi ógnun sem bandalagið var stofnað til þess að verjast. Umfram allt kallar þetta á þróun fyrirkomulags í öryggismálum sem byggist á samvinnu og umræðum fremur en árekstrum. Atlantshafsþingið hefur tekið forustuna á löggjafarsviðinu í þeirri viðleitni að leggja grunn að slíkum samskiptum á sviði öryggismála við nýfrjálsar þjóðir Mið- og Austur-Evrópu.
Þingið hóf tilraunir til að koma á samskiptum við þjóðir Mið- og Austur-Evrópu árið 1987. Það var þó ekki fyrr en í nóvember 1990, á ársfundinum í Lundúnum, að samskiptum þessum var komið í fastara form er þjóðþing Búlgaríu, Tékkóslóvakíu (nú Tékkland og Slóvakía), Ungverjalands, Póllands og fyrrum Sovétríkjanna (nú Rússland) fengu aukaaðild að Norður-Atlantshafsþinginu. Síðan þá hafa þjóðþing Albaníu, Hvíta-Rússlands, Eistlands, Lettlands, Litáens, Moldavíu, Rúmeníu, Slóveníu og Úkraínu fengið aukaaðild að þinginu. Mikilvægi aukaaðildarinnar felst í því að hún veitir löggjöfum hinna nýju lýðræðisríkja tækifæri til að taka virkan þátt í störfum þingsins (vor- og haustfundum, nefndarfundum o.fl.).
Þingið hefur einnig átt frumkvæði að öðrum áætlunum að því er varðar Mið- og Austur-Evrópu. Í samræmi við áætlun, sem sett var fram árið 1991 af tveimur bandarískum þingmönnum, Charlie Rose, fyrrum forseta Norður-Atlantshafsþingsins, og Bill Roth, og naut stuðnings beggja þingflokka Bandaríkjaþings, beinir Norður-Atlantshafsþingið nú kröftum sínum í ríkum mæli að því að efla þróun þingræðis í Mið- og Austur-Evrópu.
Meginþátturinn í Rose-Roth áætluninni er röð námsstefna og ráðstefna þar sem fjallað er um sérstök vandamál Mið- og Austur-Evrópulanda þar sem reynsla og þekking þingfulltrúa kemur að gagni og þingið getur lagt verulega af mörkum vegna sérstöðu sinnar sem fjölhliða umræðuvettvangur. Margar þessara námsstefna fjalla beint eða óbeint um samskipti hers og borgaralegra stjórnvalda, einkum um lýðræðisleg yfirráð yfir herafla. Þeim er ætlað að miðla upplýsingum og sérþekkingu sem nauðsynleg er til þess að tryggja virka þátttöku þjóðþinga í gerð varnaráætlana og ákvörðun fjárveitinga til varnarmála og herafla. Frá upphafi áætlunarinnar og fram til ársloka 1995 höfðu verið haldnar 26 námsstefnur.
Norður-Atlantshafsþingið býður einnig starfsmönnum frá löndum Mið- og Austur-Evrópu til stuttra rannsóknardvala (í þrjá til sex mánuði) á alþjóðaskrifstofunni. Einnig hefur verið komið á laggirnar þjálfunaráætlun til þess að starfslið þjóðþinga Mið- og Austur-Evrópulanda geti öðlast beina reynslu af starfsemi alþjóðlegra stofnana.
Af margvíslegri starfsemi Norður-Atlantshafsþingsins sem að framan er lýst má vera ljóst að þingið hefur bætt nýrri vídd sem beinist að Evrópu allri við hið hefðbundna hlutverk sitt að hlúa að Atlantshafstengslunum. Þetta framtak sýnir einnig að þingfulltrúar hafa gert sér ljósa þá staðreynd að framvinda efnahagslegra og pólitískra breytinga í austri krefst vestræns stuðnings á öllum sviðum, ekki síst stuðnings þjóðþinga. Tilvist virkrar löggjafarsamkundu sem hefur eftirlit og umsjón með framkvæmdarvaldinu er ómissandi liður í öllu lýðræðislegu stjórnarfari. Löggjafarsamkundur í löndum Austur-Evrópu hafa mikilvægu hlutverki að gegna í því að tryggja varanlegan árangur af pólitískum og efnahagslegum umbótum sem nú eiga sér stað og tryggja að sá árangur feli í sér tilurð raunverulegra lýðræðisþjóðfélaga.
5. Fulltrúar á Norður-Atlantshafsþinginu og embættismenn þess.
Á Norður-Atlantshafsþinginu eiga sæti 188 þingmenn. Fjöldi fulltrúa frá hverju landi ræðst að mestu af fólksfjölda. Stærsta sendinefndin er sú bandaríska með 36 þingmenn frá öldungadeild og fulltrúadeild bandaríska þingsins. Í sendinefndum Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Bretlands eru 18 þingmenn í hverri. Kanada, Spánn og Tyrkland senda 12 fulltrúa hvert land. Frá Belgíu, Grikklandi, Hollandi og Portúgal koma sjö frá hverju landi. Danmörk og Noregur senda fimm fulltrúa hvort land og frá Íslandi og Lúxemborg koma þrír frá hvoru landi. Auk fulltrúanna má hvert þjóðþing tilnefna jafnmarga varamenn sem mega taka þátt í öllum störfum þingsins en hafa ekki atkvæðisrétt. Ráðherrar í ríkisstjórnum mega ekki vera fulltrúar á Norður-Atlantshafsþinginu. Aukaaðilar taka þátt í nefndarfundum og allsherjarfundum en hafa ekki atkvæðisrétt.
Embættismenn þingsins eru sex og eru fimm þeirra kjörnir ár hvert af fulltrúum á allsherjarfundi (forseti, þrír varaforsetar, gjaldkeri). Sjötti embættismaðurinn (framkvæmdastjórinn) er kjörinn annað hvert ár af stjórnarnefndinni. Atlantshafsþinginu er stjórnað af stjórnarnefnd en í henni eiga sæti formenn allra sendinefndanna.
Alþjóðaskrifstofa Norður-Atlantshafsþingsins, undir stjórn framkvæmdastjórans, gegnir tvíþættu hlutverki. Annars vegar sér hún um mikið af þeim rannsóknum og úttektum sem eru nauðsynleg undirstaða hinna miklu starfa sem unnin eru í nefndunum og hins vegar vinnur hún stjórnunar- og skipulagsstörf sem nauðsynleg eru fyrir þingfundi, nefndarfundi og aðra skylda starfsemi Atlantshafsþingsins.
6. Fjármögnun.
Starfsemi þingsins er fjármögnuð með framlögum þjóðþinga eða ríkisstjórna aðildarríkja. Framlög eru reiknuð á grundvelli þeirra viðmiða sem notuð eru við gerð fjárhagsáætlunar NATO um kostnað annan en herkostnað. Til þess að standa straum af hluta kostnaðar við árlegt þinghald greiðir NATO einnig árlegt framlag til þingsins.
Gjaldkeri ber ábyrgð á fjármálastjórn þingsins. Hann leggur ársreikninga og fjárhagsáætlun fyrir stjórnarnefndina og allsherjarfundi þingsins. Hann nýtur aðstoðar endurskoðanda sem tilnefndur er af stjórnarnefndinni.
7. Fulltrúar Alþingis á Norður-Atlantshafsþinginu.
Fulltrúar Alþingis á fundum Norður-Atlantshafsþingsins hafa frá upphafi verið tilnefndir af þeim þingflokkum sem stóðu að samþykkt Alþingis um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu, þ.e. Alþýðuflokki, Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki. Eru tilnefndir í Íslandsdeildina þrír aðalmenn og þrír menn til vara. Í samræmi við starfsreglur Norður-Atlantshafsþingsins og ákvörðun þingflokka voru fulltrúar Alþingis sem hér segir árið 1995:
Fyrir þingkosningar í apríl 1995:
Aðalmenn: Sólveig Pétursdóttir, Sjálfstæðisflokki, formaður Íslandsdeildarinnar, Jón Kristjánsson, Framsóknarflokki, varaformaður Íslandsdeildarinnar, og Petrína Baldursdóttir, Alþýðuflokki.
Varamenn: Ingi Björn Albertsson og Árni R. Árnason, Sjálfstæðisflokki, og Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Framsóknarflokki.
Eftir þingkosningar í apríl 1995:
Aðalmenn: Sólveig Pétursdóttir, Sjálfstæðisflokki, formaður Íslandsdeildarinnar, Jón Kristjánsson, Framsóknarflokki, varaformaður Íslandsdeildarinnar, og Jón Baldvin Hannibalsson, Alþýðuflokki.
Varamenn: Árni R. Árnason og Einar Oddur Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki, og Gunnlaugur M. Sigmundsson, Framsóknarflokki.
Ritari deildarinnar er Gústaf Adolf Skúlason alþjóðaritari.
Samkvæmt samþykktum þingsins geta fulltrúar aðildarríkja tekið þátt í öllum nefndum þingsins. Vegna smæðar hefur Ísland þó aðeins atkvæðisrétt í þremur nefndum auk stjórnarnefndar.
Sólveig Pétursdóttir á sæti í stjórnarnefnd þingsins en varamaður hennar í nefndinni er Jón Kristjánsson. Annars er skipting Íslandsdeildarinnar í nefndir þannig:
Fyrir þingkosningar í apríl 1995:
Stjórnmálanefnd: Sólveig Pétursdóttir.
Varnar- og öryggismálanefnd: Ingi Björn Albertsson.
Árni R. Árnason.
Félagsmálanefnd: Petrína Baldursdóttir.
Efnahagsnefnd: Jón Kristjánsson.
Vísinda- og tækninefnd: Enginn.
Eftir þingkosningar í apríl 1995:
Stjórnmálanefnd: Sólveig Pétursdóttir.
Varnar- og öryggismálanefnd: Jón Kristjánsson.
Gunnlaugur M. Sigmundsson.
Félagsmálanefnd: Einar Oddur Kristjánsson.
Efnahagsnefnd: Árni R. Árnason.
Vísinda- og tækninefnd: Jón Baldvin Hannibalsson.
Sólveig Pétursdóttir var á ársfundi þingsins kjörinn varaformaður undirnefndar stjórnmálanefndar um evrópskar stofnanir og stofnanir sem lönd beggja vegna Atlantshafsins eiga aðild að en hún gegndi áður varaformennsku í vinnuhóp um sama málefni sem stjórnmálanefnd breytti í undirnefnd. Jón Kristjánsson á sæti í vinnuhóp varnar- og öryggismálanefndar um öryggismál á norðurslóðum, Jón Baldvin Hannibalsson á sæti í sérstakri nefnd forseta Norður-Atlantshafsþingsins um málefni Bosníu-Hersegóvínu og Árni R. Árnason á sæti í undirnefnd efnahagsnefndar um efnahagssamstarf og samhæfingu austurs og vesturs.
8. Fundir sem Íslandsdeildin tók þátt í á árinu.
Norður-Atlantshafsþingið heldur tvo allsherjarfundi árlega, svokallaðan vorfund og ársfund að hausti. Auk þess er haldinn einn sérfundur stjórnarnefndar. Á svokölluðum febrúarfundum fundar stjórnarnefndin með framkvæmdastjóra NATO og Atlantshafsráðinu, auk þess sem stjórnmála- og varnar- og öryggismálanefndirnar halda sameiginlegan fund. Þá eru reglulega haldnar námsstefnur og fundir í nefndum og undirnefndum þingsins á milli þinga. Jafnframt er árlega farið í kynnisferð til eins aðildarríkis NATO til að skoða ýmis hernaðarmannvirki og búnað. Þá voru haldnar þrjár Rose-Roth námsstefnur á árinu. Íslandsdeildin tók þátt í febrúarfundunum, sérfundi stjórnarnefndar og vor- og haustfundum þingsins á árinu 1995, auk þess sem ein Rose-Roth námsstefna var sótt.
a. Febrúarfundir.
Jón Kristjánsson sat þessa fundi fyrir hönd Íslandsdeildarinnar, auk ritara deildarinnar. Um var að ræða fund stjórnarnefndar þingsins með Atlantshafsráðinu og framkvæmdastjóra NATO og sameiginlegan fund stjórnmálanefndar þingsins og varnar- og öryggismálanefndar þess. Á þessum fundum voru rædd pólitísk og hernaðarleg málefni sem brenna heitast á NATO, svo sem hlutverk NATO, stækkun bandalagsins og hlutverk Vestur-Evrópusambandsins (VES). Mikilvægi febrúarfundanna hefur aukist verulega því að þeir eru orðnir einu fundirnir þar sem þingmenn frá aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins geta rætt málefnin sín á milli án þátttöku aukaaðila.
b. Fundur stjórnarnefndar.
Fundur stjórnarnefndar þingsins var haldinn dagana 8.–10. apríl í Marmaris í Tyrklandi. Fyrir hönd Íslandsdeildarinnar sótti ritari fundinn sem haldinn var á sama tíma og kosið var til Alþingis. Aðalumræðuefni fundarins voru stækkun NATO og efling vægis Norður-Atlantshafsþingsins. Þá var tekin fyrir umsókn Egyptalands um áheyrnaraðild að þinginu og ákveðið að fjalla um hana á vorfundinum í maí. Hvað varðar hugsanlegar aukaaðildarumsóknir Miðjarðarhafsríkja var jafnframt ákveðið að einungis yrðu teknar til umfjöllunar umsóknir frá ríkjum sem strönd eiga að Miðjarðarhafi og að lögð yrði áhersla á lýðræði og virðingu fyrir mannréttindum. Loks var ákveðið að taka fyrirkomulag allsherjarumræðunnar til endurskoðunar á vorfundinum í maí.
c. Vorfundur.
Dagana 26.–29. maí var haldinn vorfundur Norður-Atlantshafsþingsins í Búdapest. Fundinn sótti af hálfu Íslandsdeildarinnar Jón Kristjánsson, auk ritara deildarinnar, en ekki hafði verið gengið frá skipan hennar að loknum þingkosningum.
Stjórnarnefndin samþykkti beiðni um áheyrnaraðild að þinginu frá egypska þinginu annars vegar og hins vegar austurríska þinginu. Í framhaldi af umræðum um hugsanleg formleg tengsl Norður-Atlantshafsþingsins við NATO var ákveðið að framkvæmdastjórn þingsins legði fram tillögur um það mál á haustfundinum. Í framhaldi af umræðum um skipulag allsherjarumræðu þingfunda á síðasta fundi stjórnarnefndar var ákveðið að gera tilraun með nýtt skipulag á haustfundinum. Engin almenn umræða mundi eiga sér stað en í staðinn yrði aukin áhersla lögð á ályktun fundarins og umræður um breytingartillögur. Þingmenn geta samkvæmt þessu mælt í stuttu máli með eða á móti ákveðinni breytingartillögu en það verður á valdi forseta þingsins að ákveða hverjir fá orðið hverju sinni. Rætt var um nauðsyn þess að umræða ætti sér stað í þjóðþingum aðildarríkja NATO um framtíð og stækkun bandalagsins.
Haldnir voru fundir í öllum fimm nefndum þingsins. Nefndarstarfið á vorfundinum fólst að venju að mestu leyti í undirbúningsstarfi fyrir aðalfund Norður-Atlantshafsþingsins sem haldinn var í október. Drög að skýrslum um margvísleg málefni voru lögð fram í nefndunum og rædd. Fundarmönnum gafst tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum við drögin áður en skýrsluhöfundar fullvinna skýrslurnar fyrir haustfundinn. Nefndirnar fengu jafnframt til sín gesti til að ræða tiltekin málefni.
Sameiginlegur þingfundur var haldinn á síðasta degi fundarins. Í upphafi fundarins fór fram umræða um málefni Bosníu þar sem valdir fulltrúar fengu að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Lögð var fram ályktun þar sem aðgerðir Bosníu-Serba gagnvart friðargæsluliðum eru fordæmdar, farið er fram á að árásum linni og lýst er yfir stuðningi við tilraunir samstarfshóps fimmveldanna til að ná fram samningum um lausn deilunnar við stríðsaðila í fyrrum Júgóslavíu. Að Bosníuumræðunni lokinni fluttu ávörp Zoltan Gál, forseti ungverska þingsins, Karsten Voigt, forseti Norður-Atlantshafsþingsins, Gyula Horn, forsætisráðherra Ungverjalands, Sergio Balanzino, aðstoðarframkvæmdastjóri NATO, Volker Rühe, varnarmálaráðherra Þýskalands, og Richard Holbrooke, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem ber ábyrgð á málefnum Evrópu og Kanada. Svöruðu þeir fyrirspurnum að ávörpum sínum loknum.
d. Ársfundur.
Dagana 5.–9. október var haldinn haustfundur Norður-Atlantshafsþingsins í Torino á Ítalíu. Fundinn sóttu af hálfu Íslandsdeildarinnar Sólveig Pétursdóttir, formaður Íslandsdeildarinnar, Jón Kristjánsson, Árni R. Árnason og Gunnlaugur M. Sigmundsson, auk ritara Íslandsdeildarinnar.
Á fundi stjórnarnefndar var samþykkt að veita Makedóníu aukaaðild að þinginu er taka skyldi gildi við fyrsta tækifæri og eigi síðar en að ári liðnu. Töf þessa má rekja til upphaflegrar andstöðu gríska fulltrúans en að hans sögn gæti skjót afgreiðsla truflað yfirstandandi samningaviðræður milli Grikklands og Makedóníu um samskipti ríkjanna. Því var aukaaðild samþykkt með fyrrnefndri töf en gríski fulltrúinn sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Í umræðum um hugsanlega formbindingu tengsla þingsins við NATO var ákveðið að setja málið í nefnd og ræða það frekar á fundi stjórnarnefndar í mars 1996. Í ljósi kvartana sem borist hafa um ólýðræðislegar kosningar í Hvíta-Rússlandi var ákveðið að skrifa þingi ríkisins bréf þar sem skýrt væri frá áhyggjum Norður-Atlantshafsþingsins en fresta til næsta vorfundar ákvörðun um hvort sagt yrði upp aukaaðild Hvíta-Rússlands að Norður-Atlantshafsþinginu. Þá var umsókn Georgíu um aukaaðild að þinginu hafnað. Georgía hefur haft óreglulega (þ.e. ekki fasta) áheyrnaraðild að þinginu en í ljósi óstöðugleika á svæðinu og líkum á að önnur Kákasusríki mundu fylgja í kjölfarið með umsóknir um aukaaðild var umsókninni hafnað en Georgíu verður áfram boðið að senda áheyrnarfulltrúa á einstaka fundi Norður-Atlantshafsþingsins.
Haldnir voru fundir í öllum fimm fastanefndum þingsins, skýrslur ræddar og afgreiddar í fastanefndum (sjá fylgiskjal). Ályktanir sem samþykktar voru í nefndum voru sendar til sameiginlega þingfundarins til endanlegrar afgreiðslu. Margir góðir gestir mættu á nefndafundi til að ræða ýmis dagskrárefni þeirra.
Á haustfundi þingsins árið 1994 var Sólveig Pétursdóttir kjörin varaformaður nýs vinnuhóps stjórnmálanefndar um evrópskar stofnanir og stofnanir sem lönd beggja vegna Atlantshafsins eiga aðild að. Vinnuhóp þessum var nú breytt í undirnefnd og var Sólveig Pétursdóttir kjörin til að gegna varaformennsku í henni. Í varnar- og öryggismálanefnd var ákveðið að endurvekja vinnuhóp um öryggismál á norðurslóðum og á Jón Kristjánsson sæti í honum.
Sameiginlegur þingfundur var haldinn á síðasta degi fundarins. Auk Karstens Voigts, forseta Norður-Atlantshafsþingsins, fluttu þar erindi Sir Dudley Smith, forseti þings Vestur-Evrópusambandsins (VES), Frank Swaelen, forseti þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE), Arie Oostlander, varaformaður undirnefndar Evrópuþingsins um öryggis- og afvopnunarmál, Susanna Agnelli, utanríkisráðherra Ítalíu, Domenico Corcione, varnarmálaráðherra Ítalíu, Willy Claes, framkvæmdastjóri NATO, og Robert Hunter, fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá NATO.
Eftirfarandi ályktanir fastanefnda þingsins voru lagðar fram og samþykktar: um kröfur til mannréttindamála í aðildarríkjum NATO, um svæðisbundnar aðgerðir til eflingar öryggis, um upprætingu jarðsprengjusvæða, um framlag NATO í öryggismálum við Miðjarðarhaf, um lýðræði í aðildarríkjum NATO og um eflingu alþjóðlegs samstarfs gegn útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Loks var rædd og samþykkt lokaályktun fundarins í sex greinum þar sem m.a. er lögð áhersla á nauðsyn áframhaldandi virkrar þátttöku Bandaríkjanna í öryggismálum Evrópu og skorað á ríkisstjórnir aðildarríkjanna að hefjast handa við stækkun NATO.
e. Rose-Roth námsstefna.
Jón Baldvin Hannibalsson sótti Rose-Roth námsstefnu um öryggismál við Eystrasalt sem haldin var í Vilnius dagana 25.–28. október.
Alþingi, 21. febr. 1996.
Sólveig Pétursdóttir,
Jón Kristjánsson,
Jón Baldvin Hannibalsson.
form.
varaform.
Fylgiskjal I.
| NORÐUR-ATLANTSHAFSÞINGIÐ Kemur saman á allsherjarfundi tvisvar á ári, á vorfund og ársfund |
||
| Sendinefndir aðildarríkja 16 aðildarríki Atlantshafsbandalagsins 188 þingmenn Fjöldi þingsæta er í hlutfalli við fólksfjölda |
Aukaaðilar Frá Albaníu, Búlgaríu, Eistlandi, Hvíta-Rússlandi, Lettlandi, Litáen, Moldavíu, Póllandi, Rúmeníu, Rússlandi, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklandi, Ungverjalandi og Úkraínu Hafa ekki atkvæðisrétt |
|
| Framkvæmdastjórn Kosin árlega Forseti, þrír varaforsetar, gjaldkeri, framkvæmdastjóri |
Stjórnarnefnd Formenn sendinefnda Formenn nefnda Hvert land hefur eitt atkvæði Kemur saman þrisvar á ári |
|
| Nefndarfundir Fimm nefndir: Félagsmálanefnd Varnar- og öryggismálanefnd Efnahagsnefnd Stjórnmálanefnd Vísinda- og tækninefnd Taka saman, ræða og greiða atkvæði um skýrslur og ályktanir Mynda undirnefndir til að rannsaka afmörkuð mál og afla upplýsinga |
Allsherjarfundir Greiða atkvæði um tillögur nefndanna fimm og fjárhagsáætlun Ræða afmörkuð málefni sem ofarlega eru á baugi Hlýða á ávörp gesta Þátttaka auka- og áheyrnaraðila |
Önnur starfsemi Árleg kynnisferð til að skoða hernaðarmannvirki og búnað Námsstefnur og hringborðsumræður innan Rose-Roth áætlunarinnar |
Fylgiskjal II.
UNDIRNEFNDIR — VINNUHÓPAR
Stjórnmálanefnd.
(42 fulltrúar.*)
Undirnefnd um stækkun NATO og nýju lýðræðisríkin.
Undirnefnd um evrópskar stofnanir og stofnanir sem lönd beggja vegna Atlantshafs eiga aðild að.
Vinnuhópur um Suðursvæðið.
Varnar- og öryggismálanefnd.
(42 fulltrúar.*)
Undirnefnd um varnar- og öryggissamstarf Evrópu og Norður-Ameríku.
Undirnefnd um framtíð herafla.
Vinnuhópur um öryggismál á norðurslóðum.
Efnahagsnefnd.
(35 fulltrúar.*)
Undirnefnd um efnahagssamstarf og samhæfingu austurs og vesturs.
Félagsmálanefnd.
(31 fulltrúi.*)
Undirnefnd um samvinnu og öryggi almennra borgara.
Undirnefnd um Miðjarðarhafssvæðið.
Vísinda- og tækninefnd.
(31 fulltrúi.*)
Undirnefnd um útbreiðslu hernaðartækni.
* Fulltrúum fjölgar um einn eða tvo eftir því sem Íslendingar og Lúxemborgarar, með þrjá fulltrúa hvor þjóð, skipa fulltrúum sínum í einhverjar þrjár af þessum fimm nefndum.
Fylgiskjal III.
Skýrslur Norður-Atlantshafsþingsins 1995.
Stjórnmálanefnd:
General Report. Towards a Security Strategy for Europe and NATO.
Special Report on NATO Enlargement. Blessings of Liberty: A Wider NATO and Soon.
Interim Report of the Sub-Committee on Eastern Europe and the former Soviet Union. Projecting Stability in an Undivided Europe: Partnership for Peace and a Pact on Stability in Europe.
Interim Report of the Working Group on Transatlantic and European Organizations. Collective Security Revisited.
Special Report of the Working Group on Transatlantic and European Organizations. Civi lian Control of the Armed Forces of the Republic of Poland.
Special Report of the Working Group on Transatlantic and European Organizations. Und erstanding and Ensuring Mutual Security: A Challenging Task for us all — An In-Between Perspective.
Special Report of the Working Group on Transatlantic and European Organizations. Transatlantic Security: Beyond NATO.
Varnar- og öryggismálanefnd:
General Report. Structure and Functions; European Security and Defence Identity (ESDI) and Combined Joint Task Forces (CJTF).
Special Report. The NAA Enlargement Process: Maintaining the Momentum.
Interim Report of the Sub-Committee on the Future of the Armed Forces. The Landmine Crisis: A Growing Epidemic.
Efnahagsnefnd:
General Report. Causes and Effects of Global Currency Fluctuations.
Special Report. The Czech Republic: A Case Model.
Interim Report of the Sub-Committee on East-West Economic Cooperation and Con vergence. The Reality of EU Enlargement: Larger and Shallower?
Félagsmálanefnd:
General Report. Democracy in the Alliance Countries: A Diagnostic.
Report of the Sub-Committee on the Mediterranean Basin. Frameworks for Cooperation in the Mediterranean.
Interim Report of the Sub-Committee on the OSCE. The Security Implications of the Opening of Borders in Europe.
Vísinda- og tækninefnd:
Interim Report of the Sub-Committee on the Proliferation of Military Technology.
Special Report. Ozone Depletion.
Special Report. Land Mines and Mine Clearance Technologies.
Information Document. “Inhumane Weapons Convention.
Information Document. Nuclear Proliferation.
Special Report. Science, Technology and Partnership for Peace.
Fylgiskjal IV.
Ályktanir Norður-Atlantshafsþingsins 1995.
Resolution 256 on the Bosnian Crisis.
Resolution 262 on the Contribution of the Alliance to Mediterranean Security.
Resolution 263 on Democracy in the Alliance Member Countries.
Resolution 278 on Landmine Eradication Measures.
Resolution 260 on Upholding Human Rights Standards in NATO.
Resolution 261 on Building Regional Security.
Resolution 262 on Strengthening the Nuclear Non-Proliferation Regime.
Resolution 321 on the Euro-Atlantic Security Relationship: Reform and Renewal.