Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 353 . mál.


613. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um mengunarhættu vegna olíuflutninga.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Hvaða viðbúnaður er hérlendis til að bregðast við stórfelldri olíumengun við strendur landsins, t.d. hliðstæðri og ítrekað hefur orðið af skipströndum við Bretlandseyjar?
    Hvaða aðili samræmir aðgerðir til að draga úr líkum á slíkri vá og hver annast yfirstjórn aðgerða ef slys ber að höndum?
    Til hvaða fyrirbyggjandi aðgerða er brýnast að grípa af Íslendinga hálfu, einna og í samvinnu við útlendinga, til varnar mengun vegna olíuflutninga við strendur landsins?