Ferill 357. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 357 . mál.


622. Frumvarp til laga



um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar Vitastofnunar Íslands, Hafnamálastofnunar ríkisins og Siglingamálastofnunar ríkisins í Siglingastofnun Íslands.

Frá samgöngunefnd.



I. KAFLI


Breyting á lögum um skipamælingar, nr. 50/1970, með síðari breytingum.


1. gr.


    Í stað orðsins „siglingamálastjóri“ í 1.–3. mgr. 2. gr., 4. gr., 8. gr., 9. gr. og 15. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: forstjóri Siglingastofnunar Íslands.

II. KAFLI


Breyting á lögum um náttúruvernd, nr. 47/1971, með síðari breytingum.


2. gr.


    Í stað orðsins „siglingamálastjóri“ í 6. tölul. 2. mgr. 4. gr. laganna kemur: forstjóri Siglingastofnunar Íslands.

III. KAFLI


Breyting á lögum um kafarastörf, nr. 12/1976.


3. gr.


    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í 1. mgr. 5. gr. og 2. mgr. 6. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun Íslands.

IV. KAFLI


Breyting á lögum um bátaábyrgðarfélög, nr. 18/1976, með síðari breytingum.


4. gr.


    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í 4. mgr. 7. gr. laganna kemur: Siglingastofnun Íslands.

V. KAFLI


Breyting á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands,
nr. 81/1976, með síðari breytingum.

5. gr.


    Í stað orðanna „Siglingamálastofnunar ríkisins“ í 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: Siglingastofnunar Íslands.

VI. KAFLI


Breyting á lögum um tilkynningarskyldu íslenskra skipa, nr. 40/1977.


6. gr.


    Í stað orðsins „Siglingamálastofnun“ í 5. gr. laganna kemur: Siglingastofnun Íslands.

VII. KAFLI


Breyting á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum,
nr. 46/1980, með síðari breytingum.

7. gr.


    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í a-lið 2. mgr. 2. gr. laganna kemur: Siglingastofnun Íslands.

VIII. KAFLI


Breyting á lögum um vitamál, nr. 56/1981, með síðari breytingum.


8. gr.


    1. gr. laganna orðast svo:
    Um yfirstjórn vitamála fer eftir lögum um Siglingastofnun Íslands.

9. gr.


    2.–6. gr. laganna falla brott og breytist greinatala í lögunum til samræmis við það.

10. gr.


    Í stað orðanna „Vitastofnun Íslands“ í 5.–8. mgr. 7. gr., 8. gr., 10. gr., 1. og 3. mgr. 13. gr., 1.–3. mgr. 14. gr. og 15. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun Íslands.
    Í stað orðsins „Vitastofnun“ í 6. og 7. mgr. 7. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun.
    Í stað orðsins „Vitanefndar“ í 4., 5. og 8. mgr. 7. gr. og 12. gr. laganna kemur: siglingaráðs.

11. gr.


    16. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um framkvæmd laga þessara.

IX. KAFLI


Breyting á lögum um tóbaksvarnir, nr. 74/1984, með síðari breytingum.

12. gr.


         Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í 3. mgr. 13. gr. laganna kemur: Siglingastofnun Íslands.

X. KAFLI


Breyting á lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum,
nr. 112/1984, með síðari breytingum.

13. gr.


    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í j-lið 2. gr., 3. mgr. 13. gr. og 2. mgr. 19. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun Íslands.

XI. KAFLI


Breyting á lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða
á íslenskum skipum, nr. 113/1984, með síðari breytingum.

14. gr.


    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í 2. mgr. 6. gr., 5. mgr. 9. gr. og 13. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun Íslands.

XII. KAFLI


Breyting á siglingalögum, nr. 34/1985, með síðari breytingum.


15. gr.


    Í stað orðsins „Siglingamálastofnun“ í 3. mgr. 227. gr. og 228. gr. kemur: Siglingastofnun.
    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í 1.–4. mgr. 220. gr., 2. mgr. 221. gr., 222. gr., 223. gr., 5.–8. mgr. 226. gr., 1. mgr. 227. gr. og 4. mgr. 230. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun Íslands.

XIII. KAFLI


Breyting á sjómannalögum, nr. 35/1985, með síðari breytingum.


16. gr.


    Í stað orðsins „Siglingamálastofnun“ í 4. mgr. 63. gr. laganna kemur: Siglingastofnun Íslands.

XIV. KAFLI


Breyting á lögum um skráningu skipa, nr. 115/1985, með síðari breytingum.


17. gr.


    Í stað orðsins „Siglingamálastofnun“ í 3. mgr. 4. gr., 2. mgr. 5. gr., 1., 2. og 5. mgr. 6. gr., 4. mgr. 9. gr., 2. mgr. 10. gr., 1. og 2. mgr. 12. gr., 1.–3. mgr. 13. gr., 14. gr., 3. mgr. 15. gr., 16. gr., 17. gr. og 1. mgr. 23. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun.
    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: Siglingastofnun Íslands.
    Í stað orðsins „siglingamálastjóri“ í 2. og 3. mgr. 3. gr., 2. mgr. 5. gr., 3. og 6. mgr. 6. gr., 7. gr., 6. mgr. 9. gr., 2. mgr. 15. gr., 1. og 2. mgr. 18. gr. og 1. og 2. mgr. 19. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: forstjóri Siglingastofnunar Íslands.

XV. KAFLI


Breyting á lögum um varnir gegn mengun sjávar, nr. 32/1986,
með síðari breytingum.

18. gr.


    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í 2. og 3. mgr. 10. gr., 1. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr., 17. gr., 18. gr., 20. gr., 21. gr., 22. gr. og 1. mgr. 24. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun Íslands.


    Orðin „og Hafnamálastofnun ríkisins“ í 17. gr. laganna falla brott.

XVI. KAFLI


Breyting á lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988,
með síðari breytingum.

19. gr.


    Í stað orðsins „siglingamálastjóri“ í 2. mgr. 27. gr. laganna kemur: forstjóri Siglingastofnunar Íslands.

XVII. KAFLI


Breyting á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990, með síðari breytingum.


20. gr.


    Í stað orðanna „Siglingamálastofnunar ríkisins“ í 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: Siglingastofnunar Íslands.

XVIII. KAFLI


Breyting á lögum um fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum,
nr. 54/1992, með síðari breytingum.

21. gr.


    Í stað orðanna „Siglingamálastofnunar ríkisins“ í 5. gr. laganna kemur: Siglingastofnunar Íslands.

XIX. KAFLI


Breyting á lögum um Kjaradóm og kjaranefnd, nr. 120/1992,
með síðari breytingum.

22. gr.


    Í stað orðsins „siglingamálastjóri“ í 1. mgr. 9. gr. laganna kemur: forstjóri Siglingastofnunar Íslands.
    Orðin „vita- og hafnamálastjóri“ í 1. mgr. 9. gr. laganna falla brott.

XX. KAFLI


Breyting á lögum um leiðsögu skipa, nr. 34/1993, með síðari breytingum.


23. gr.


    Í stað orðanna „Vitastofnun Íslands“ í 1. gr. og 1. og 4. mgr. 3. gr. laganna kemur: Siglingastofnun Íslands.
    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í 2. mgr. 4. gr. laganna kemur: Siglingastofnun Íslands.

XXI. KAFLI


Breyting á lögum um eftirlit með skipum, nr. 35/1993,


með síðari breytingum.


24. gr.


    Í stað orðanna „er háð eftirliti Siglingamálastofnunar“ í 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: er háð eftirliti Siglingastofnunar Íslands.
    Í stað orðsins „Siglingamálastofnun“ í 1. mgr. 6. gr., 1. mgr. 7. gr., 2. mgr. 10. gr., 2. mgr. 11. gr., 2. og 3. tölul. 1. mgr. 12. gr., 3. og 4. mgr. 15. gr., 1. mgr. 17. gr., 2.–6. mgr. 18. gr., 19. gr., 20. gr., 21. gr., 22. gr., 3. mgr. 26. gr. og 3. mgr. 28. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun.
    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: Siglingastofnun.
    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í 1. mgr. 7. gr., 2. tölul. 1. mgr. 12. gr., 2. mgr. 13. gr., 2. mgr. 17. gr., 1. mgr. 18. gr. og 1. mgr. 28. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun Íslands.
    Í stað orðsins „siglingamálastjóri“ í 1. mgr. 6. gr., 8. gr., 2. mgr. 10. gr., 2. mgr. 11. gr., 1. mgr. 14. gr., 1. mgr. 15. gr., 21. gr., 2. mgr. 23. gr. og 2. mgr. 26. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: forstjóri Siglingastofnunar Íslands.

XXII. KAFLI


Breyting á hafnalögum, nr. 23/1994.


25. gr.


    1. gr. laganna orðast svo:
    Um yfirstjórn hafnamála fer eftir lögum um Siglingastofnun Íslands.

26. gr.


    2.–6. gr. laganna falla brott og breytist greinatala í lögunum til samræmis við það.

27. gr.


    Í stað orðsins „Hafnamálastofnun“ í 15. gr., 1. mgr. 18. gr., 20. gr., 1. mgr. 27. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna kemur: Siglingastofnun Íslands.
    Í stað orðsins „Hafnamálastofnun“ í 2. og 3. mgr. 16. gr., 2. mgr. 17. gr., 2. og 3. mgr. 22. gr., 3. og 4. tölul. 1. mgr. 24. gr., 2. mgr. 29. gr. og 1. mgr. 33. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun.
    Í stað orðanna „Hafnamálastofnun ríkisins“ í 1. mgr. 22. gr., 34. gr. og 36. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun Íslands.
    Í stað orðsins „hafnamálastjóri“ í 3. mgr. 24. gr., 3. tölul. 25. gr. og 4. mgr. 29. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: forstjóri Siglingastofnunar Íslands.

XXIII. KAFLI


Breyting á lögum um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, nr. 92/1994,
með síðari breytingum.

28. gr.


    Í stað orðanna „Siglingamálastofnunar ríkisins“ í 1. mgr. 4. gr. og 2. mgr. 8. gr. laganna kemur: Siglingastofnunar Íslands.

XXIV. KAFLI


Breyting á lögum um áhafnir íslenskra kaupskipa, nr. 59/1995.


29. gr.


    Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ í l- og p-lið 2. gr. og 8. gr. laganna kemur í viðeigandi falli: Siglingastofnun Íslands.

XXV. KAFLI


Gildistaka.


30. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. október 1996.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta er flutt af samgöngunefnd sem fylgifrumvarp með frumvarpi til laga um Siglingastofnun Íslands. Frumvarpið er lagt fram þar sem upphaflegt fylgifrumvarp var ekki tæmandi og talið rétt að leggja fram nýtt frumvarp. Með þessu frumvarpi er ákvæðum ýmissa sérlaga breytt með hliðsjón af þeim breytingum sem frumvarp til laga um Siglingastofnun Íslands hefur í för með sér. Breytingarnar eru þær helstar að heitum einstakra stofnana er breytt í Siglingastofnun Íslands við sameininguna heitum yfirmanna einstakra stofnana er breytt í heitið forstjóri Siglingastofnunar Íslands og einstök ákvæði eru felld brott, þar á meðal ákvæði um Vitanefnd í lögum um vitamál, en gert er ráð fyrir því í frumvarpi til laga um Siglingastofnun Íslands að siglingaráð taki við verkefnum nefndarinnar.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Hér er lögð til breyting á lögum um skipamælingar, nr. 50/1970. Heiti yfirmanns siglingamála er breytt, þ.e. í stað siglingamálastjóra kemur forstjóri Siglingastofnunar Íslands.

Um 2. gr.


    Hér er lögð til breyting á lögum um náttúruvernd, nr. 47/1971, er varðar það hverjir eiga sæti á náttúruverndarþingi. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 1. gr.

Um 3. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um kafarastörf, nr. 12/1976, að heiti stofnunar verði breytt, þ.e. í stað Siglingamálastofnunar ríkisins kemur Siglingastofnun Íslands.

Um 4. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um bátaábyrgðarfélög, nr. 18/1976, að heiti stofnunar verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. gr.

Um 5. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 81/1976, að heiti stofnunar verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. gr.

Um 6. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um tilkynningaskyldu íslenskra skipa, nr. 40/1977, að heiti stofnunar verði breytt, þ.e. í stað Siglingamálastofnunar kemur Siglingastofnun Íslands.

Um 7. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, að heiti stofnunar verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. gr.

Um 8. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um vitamál, nr. 56/1981, að um yfirstjórn vitamála fari eftir lögum um Siglingastofnun Íslands. Í 1. gr. frumvarps til laga um Siglingastofnun Íslands er gengið út frá því að samgönguráðherra fari með yfirstjórn vitamála, nema annað sé ákveðið í öðrum lögum. Er það í samræmi við 1. gr. laga um vitamál.

Um 9. gr.


    Lagt er til að 2.–6. gr. laga um vitamál falli brott og að greinatala laganna breytist til samræmis við það. Í ákvæðum 2. og 3. gr. laganna er kveðið á um verkefni Vitastofnunar Íslands, en í 3. gr. frumvarps til laga um Siglingastofnun Íslands er hins vegar kveðið á um verkefni Siglingastofnunar Íslands. Þar eru ákvæði um að Siglingastofnun Íslands hafi þau verkefni með höndum sem Vitastofnun Íslands hefur annast. Í 4.–6. gr. laga um vitamál er fjallað um Vitanefnd og verkefni hennar. Gert er ráð fyrir því að nefndin verði lögð niður og siglingaráð taki við verkefnum hennar, sbr. 6. gr. frumvarps til laga um Siglingastofnun Íslands.

Um 10. gr.


    Hér er lagt til að ákvæði um Vitanefnd verði felld brott og heitum stofnana í lögum um vitamál breytt, þ.e. í stað Vitastofnunar Íslands og Siglingamálastofnunar ríkisins kemur Siglingastofnun Íslands og í stað Vitanefndar kemur siglingaráð.

Um 11. gr.


    Lagt er til að ráðherra geti sett reglugerð um nánari framkvæmd laga um vitamál, nr. 56/1981, með síðari breytingum.

Um 12. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um tóbaksvarnir, nr. 74/1984, að heiti stofnunar verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. gr.

Um 13. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna, nr. 112/1984, að heiti stofnunar verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. gr.

Um 14. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum, nr. 113/1984, að heiti stofnunar verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. gr.

Um 15. gr.


    Hér er breytt heitum stofnana í siglingalögum, nr. 34/1985. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. og 6. gr.

Um 16. gr.


    Lögð er til sú breyting á sjómannalögum, nr. 35/1985, að heiti stofnunar verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 6. gr.

Um 17. gr.


    Hér er breytt heitum stofnana í lögum um skráningu skipa, nr. 115/1985, og jafnframt er breytt heiti yfirmanns stofnunar. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 1., 3. og 6. gr.

Um 18. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um varnir gegn mengun sjávar, nr. 32/1986, að heitum stofnana verði breytt eða þau felld brott. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. gr.

Um 19. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988, að heiti yfirmanns siglingamála verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 1. gr.

Um 20. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990, að heiti stofnunar verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. gr.

Um 21. gr.


         Lögð er til sú breyting á lögum um fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum, nr. 54/1992, að heiti stofnunar verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. gr.

Um 22. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um Kjaradóm og kjaranefnd, nr. 120/1992, að heiti yfirmanns siglingamála er breytt og heiti yfirmanns vita- og hafnamála samkvæmt núgildandi lögum verði fellt brott. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 1. gr.

Um 23. gr.


    Hér er breytt heitum stofnana í lögum um leiðsögu skipa, nr. 34/1993, þ.e. í stað Vitastofnunar Íslands og Siglingamálastofnunar ríkisins kemur Siglingastofnun Íslands.

Um 24. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um eftirlit með skipum, nr. 35/1993, að heiti stofnunar verði breytt og jafnframt nafni yfirmanns siglingamála. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 1., 3. og 6. gr.

Um 25. gr.


    Hér er lögð til sú breyting á hafnalögum, nr. 23/1994, að um yfirstjórn hafnamála fari eftir lögum um Siglingastofnun Íslands. Í 1. gr. frumvarps til laga um Siglingastofnun Íslands er miðað við að samgönguráðherra fari með yfirstjórn hafnamála, nema annað sé ákveðið í öðrum lögum. Er það í samræmi við 1. gr. hafnalaga.

Um 26. gr.


    Hér er lagt til að 2.–6. gr. hafnalaga falli brott og greinatala laganna breytist til samræmis við það. Ákvæði 2. og 3. gr. laganna kveða á um skipun og verkefni hafnaráðs, en í frumvarpi til laga um Siglingastofnun Íslands eru ákvæði um þetta í 4. og 5. gr.

Um 27. gr.


    Hér er lögð til breyting á heitum stofnana í hafnalögum, þ.e. að í stað Hafnamálastofnunar eða Hafnamálastofnunar ríkisins komi Siglingastofnun eða Siglingastofnun Íslands. Þá er jafnframt breytt heiti yfirmanns stofnunar, þ.e. í stað hafnamálastjóra kemur forstjóri Siglingastofnunar Íslands.
    

Um 28. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, nr. 92/1994, að heiti stofnunar verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. gr.

Um 29. gr.


    Lögð er til sú breyting á lögum um áhafnir íslenskra kaupskipa, nr. 59/1995, að heiti stofnunar verði breytt. Um greinina vísast að öðru leyti til athugasemda við 3. gr.

Um 30. gr.


    Gildistakan skal miðast við 1. október 1996 en það er sá dagur sem Siglingastofnun Íslands mun formlega taka til starfa.