Ferill 117. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 117 . mál.


698. Breytingartillaga



við frv. til l. um erfðabreyttar lífverur.

Frá umhverfisnefnd.



    4. mgr. 13. gr. orðist svo:
    Hollustuvernd ríkisins skal leita umsagna Náttúruverndarráðs, Náttúrufræðistofnunar Íslands og rannsóknastofnana eftir því sem við á og hjá aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, eins og nánar er kveðið á um í reglugerð.