Ferill 432. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 432 . mál.


762. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um aðstoð við gjaldþrota einstaklinga.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



    Liggur fyrir félagsleg rannsókn á því hversu margar fjölskyldur hafa lent í þrengingum vegna gjaldþrota einstaklinga og fyrirtækja sl. tíu ár?
    Er vitað hversu margar fjölskyldur hafa flutt úr landi í kjölfar gjaldþrots þar sem þær treysta sér ekki til að búa á Íslandi?
    Hvaða ráðstafanir gerir ríkisvaldið til að aðstoða einstaklinga við að byrja nýtt líf eftir gjaldþrot?
    Telur ráðherra koma til greina, með hliðsjón af því hve margir hafa orðið gjaldþrota á síðustu árum, að auðvelda fólki sérstaklega að komast inn á atvinnumarkaðinn?