Ferill 439. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 439 . mál.


771. Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um gjaldþrot einstaklinga.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



    Hversu margar beiðnir um gjaldþrot einstaklinga voru gerðar á árunum 1992–95 að kröfu innheimtumanna ríkissjóðs og tollstjóra?
    Hve hátt hlutfall var það af gjaldþrotabeiðnum sömu ár?


Skriflegt svar óskast.