Ferill 459. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 459 . mál.
793. Frumvarp til laga
um lágmarkslaun, hámarkslaun og atvinnuleysisbætur.
Flm.: Gísli S. Einarsson.
1. gr.
Lægstu mánaðarlaun fyrir fulla dagvinnu skulu nema 80.000 kr. fyrir 16 ára og eldri.
2. gr.
Atvinnuleysisbætur skulu ekki vera lægri en 57.000 kr. á mánuði.
3. gr.
Föst umsamin hámarkslaun skulu ekki vera hærri en sexföld lágmarkslaun.
4. gr.
Lög þessi öðast þegar gildi.
Greinargerð.
Meginvandinn í íslensku þjóðfélagi er fátækt sem stafar af lágum launum. Þau hafa leitt til fólksflótta frá landinu. Íslendingum fjölgaði 50% meira í Danmörku en á Íslandi árið 1995. Alls fluttu 1.060 héðan til Danmerkur árið 1994. Íslendingum fjölgaði um 30% í Noregi og um 60% á Grænlandi. Alls eru 20.800 Íslendingar búsettir erlendis og fjölgaði þeim um 10% milli áranna 1994 og 1995.
Samkvæmt upplýsingum hjálparstofnana og ýmissa líknaraðila hafa þúsundir einstaklinga hér á landi notið matargjafa sökum fátæktar. Hjálparstarf hefur sífellt aukist innan lands vegna bágs ástands. Félagsleg aðstoð sveitarfélaga hefur aukist svo mjög síðustu mánuði að fjármunir til þessa málaflokks samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 1996 eru nú þegar uppurnir hjá mörgum sveitarfélögum. Félagsmálastofnanir hafa ekki um árabil átt jafnannríkt við fátækrahjálp.
Þar sem ekki hefur tekist með samningum að knýja fram hækkun lægstu launa ber Alþingi Íslendinga skylda til að grípa inn í þessi mál með lagasetningu. Ekki er þörf á miklum rökstuðningi í þessu sambandi, rökin eru við hvert fótmál. Hækkun lægstu launa í 80.000 kr. á mánuði mun auka velferð í íslensku þjóðfélagi, jafna laun og bæta afkomu margra einstaklinga.
Á undanförnum árum og síðastliðnum mánuðum hefur komið berlega í ljós að lágmarkslaun á Íslandi eru orðin áberandi lægri en í helstu viðmiðunarlöndum okkar. Ástæður eru líklega margar og flókið mál að rekja þær. Þegar borin eru saman lífskjör og laun á Íslandi og í nágrannalöndum okkar þarf að taka tillit til margra þátta, svo sem:
Laun og bætur í Danmörku.
Hér skulu tilgreindar upplýsingar frá Danmörku, sem flutningsmaður hefur aflað sér, um lágmarkslaun og annað sem varðar miklu um framfærslumöguleika einstaklinga og fjölskyldna:
Fyrir barn 0–2 ára
10.200 dkr.
Fyrir barn 3–6 ára
9.100 dkr.
Fyrir barn 7–17 ára
7.100 dkr.
Danska húsnæðiskerfið.
Búsetugreiðsla til þess sem leigir húsnæði er 75% af mismun á húsaleigu og reiknaðri eigingreiðslu. Eigingreiðsla byggist á sameiginlegum fjölskyldutekjum og nemur 16% af tekjunum. Ef tekjur fara yfir 139.000 dkr. er tekið tillit til 26,75% af tekjum umfram það mark.
Dæmi:
Tekjur fjölskyldu
10.000 dkr.
Leiga á mánuði
2.500 dkr.
Útreikningur búsetugreiðslu:
100% af húsaleigu
2.500 dkr.
Frádregin eigingreiðsla
1.600 dkr.
Mismunur
900 dkr.
Búsetugreiðsla er 75% af mismun
675 dkr.
Fjölskylda án barna:
Hámark 15% af húsaleigu
375 dkr.
Ekki er unnt að fá hærri búsetugreiðslu en 27.216 dkr. á ári, eða u.þ.b. 2.268 dkr. á mánuði.
Ef ekki eru börn undir 23 ára aldri í fjölskyldunni er búsetugreiðsla þó aldrei hærri en sem nemur 15% af húsaleigu.
Ef búsetugreiðsla er lægri en 167 dkr. á mánuði fellur hún niður.
Fylgiskjal I.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur,
Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur:
Laun verslunar- og skrifstofufólks
á Íslandi og í Danmörku.
(Febrúar 1996.)
(18 síður myndaðar. Athugið pdf-skjalið)
Fylgiskjal II.
Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur:
Samanburður á tekjum verkafólks á Íslandi og í Danmörku.
Unnið fyrir 18. þing Verkamannasambands Íslands.
(Október 1995.)
(12 síður myndaðar. Athugið pdf-skjalið)