Ferill 217. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 217 . mál.


856. Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 131/1990, um Háskóla Íslands.

Frá 2. minni hluta menntamálanefndar (LB, SJóh).



    1. gr. orðist svo:
    Í stað 6. og 7. mgr. 21. gr. laganna koma þrjár nýjar málsgreinar er orðast svo:
    Við skrásetningu til náms greiðir stúdent skrásetningargjald, 9.000 kr. Af þeirri fjárhæð er háskólaráði heimilt að ráðstafa allt að 2.800 kr. til Félagsstofnunar stúdenta og allt að 2.200 kr. til stúdentaráðs Háskóla Íslands til sérstakra verkefna samkvæmt samningi milli Háskólans og stúdentaráðs sem háskólaráð staðfestir.
    Þeir einir teljast stúdentar við Háskóla Íslands sem skrásettir hafa verið til náms. Í reglugerð má kveða nánar á um árlega skrásetningu stúdenta.
    Heimilt er að hækka fjárhæðir þær sem tilgreindar eru í 6. mgr. til samræmis við þær breytingar sem verða á vísitölu neysluverðs, sbr. lög nr. 12/1995.