Ferill 399. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 399 . mál.
866. Frumvarp til laga
um breytingu á skaðabótalögum, nr. 50/1993.
(Eftir 2. umr., 24. apríl.)
1. gr.
Í stað „7,5–földum“ í 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: tíföldum.
2. gr.
2. mgr. 8. gr. laganna orðast svo:
Þegar miskastig er minna en 10% greiðast engar örorkubætur. Þegar miskastig er 10%, 12%, 15%, 18% og 20% skulu örorkubætur vera 120%, 125%, 130%, 135% eða 140% af bótum fyrir varanlegan miska.
3. gr.
Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Dómsmálaráðherra skal skipa nefnd til að vinna að heildarendurskoðun skaðabótalaga. Ráðherra skal leggja fyrir Alþingi frumvarp til breytinga á lögunum eigi síðar en í október 1997.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1996.