Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 874, 120. löggjafarþing 399. mál: skaðabótalög (margföldunarstuðull o.fl.).
Lög nr. 42 13. maí 1996.
Þegar miskastig er minna en 10% greiðast engar örorkubætur. Þegar miskastig er 10%, 12%, 15%, 18% og 20% skulu örorkubætur vera 120%, 125%, 130%, 135% eða 140% af bótum fyrir varanlegan miska.
Dómsmálaráðherra skal skipa nefnd til að vinna að heildarendurskoðun skaðabótalaga. Ráðherra skal leggja fyrir Alþingi frumvarp til breytinga á lögunum eigi síðar en í október 1997.
Þingskjal 874, 120. löggjafarþing 399. mál: skaðabótalög (margföldunarstuðull o.fl.).
Lög nr. 42 13. maí 1996.
Lög um breytingu á skaðabótalögum, nr. 50/1993.
1. gr.
Í stað „7,5-földum“ í 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: tíföldum.2. gr.
2. mgr. 8. gr. laganna orðast svo:Þegar miskastig er minna en 10% greiðast engar örorkubætur. Þegar miskastig er 10%, 12%, 15%, 18% og 20% skulu örorkubætur vera 120%, 125%, 130%, 135% eða 140% af bótum fyrir varanlegan miska.
3. gr.
Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Dómsmálaráðherra skal skipa nefnd til að vinna að heildarendurskoðun skaðabótalaga. Ráðherra skal leggja fyrir Alþingi frumvarp til breytinga á lögunum eigi síðar en í október 1997.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1996.Samþykkt á Alþingi 29. apríl 1996.