Ferill 376. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 376 . mál.


898. Nefndarálit



um frv. til l. um réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á fund til sín Þorstein A. Jónsson frá dómsmálaráðuneyti, Benedikt Bogason hæstaréttarritara og Grétar J. Guðmundsson og Vigdísi Hreinsdóttur frá Húsnæðisstofnun. Þá bárust nefndinni umsagnir um málið frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Neytendasamtökunum, Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna og Sambandi íslenskra viðskiptabanka.
    Eins og heiti frumvarpsins ber með sér miðar það að því að auðvelda einstaklingum sem eiga í verulegum fjárhagsörðugleikum að leita nauðasamninga. Í því felst að ríkið greiðir kostnað af aðstoð við að leita nauðasamnings, fyrst og fremst lögmannsþóknun, ásamt greiðslu tryggingar fyrir kostnaði við undirbúning og gerð nauðasamnings. Þó er miðað við að slík aðstoð nemi að hámarki 250.000 kr.
    Samkvæmt frumvarpinu verður það í höndum þriggja manna nefndar sem dómsmálaráðherra skipar að yfirfara umsóknir og meta þörfina á réttaraðstoð í hverju tilviki fyrir sig. Allsherjarnefnd leggur áherslu á að fjárhagsaðstoð nemi aldrei hærri fjárhæð en sem svarar til raunverulegs kostnaðar í hverju tilviki fyrir sig. Skv. 5. gr. getur ráðherra sett reglugerð þar sem mælt er nánar fyrir um framkvæmd laganna. Nefndin telur brýnt að slík reglugerð verði sett og þar verði m.a. tekið á þessu atriði.
    Með hliðsjón af framansögðu mælir nefndin með að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 2. maí 1996.



Sólveig Pétursdóttir,

Valgerður Sverrisdóttir.

Árni R. Árnason.


form., frsm.



Ögmundur Jónasson,

Kristján Pálsson.

Guðný Guðbjörnsdóttir,


með fyrirvara.

með fyrirvara.



Jón Kristjánsson.

Hjálmar Jónsson.

Sighvatur Björgvinsson.