Ferill 439. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 439 . mál.
916. Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar um gjaldþrot einstaklinga.
Fyrirspurnin er svohljóðandi:
Í byrjun árs 1994 var nýtt málaskráningartölvukerfi tekið í notkun hjá héraðsdómstólunum fyrir alla málaflokka og eru skráðar í það mun víðtækari upplýsingar en áður tíðkaðist. Með tilkomu þessa málaskráningarforrits er hægt að afla mun víðtækari upplýsinga frá dómstólunum en hægt var þegar málaskrár voru handfærðar.
Hjá minni héraðsdómstólunum hafa öll mál frá 1. júlí 1992 verið skráð í kerfið en vegna mikils málafjölda í héraðsdómi Reykjavíkur hefur enn ekki gefist tími til að flytja gögn úr eldri kerfum yfir í nýja skráningarkerfið. Sökum þess eru tölvutæk gögn frá héraðsdómi Reykjavíkur frá árinu 1993 ekki fullnægjandi til að vinna upp úr þeim upplýsingar um fjölda gjaldþrotaskiptabeiðna innheimtumanna ríkissjóðs og tollstjóra á hendur einstaklingum. Af því leiðir að ekki er hægt að finna samtölur yfir fjölda slíkra beiðna nema árin 1994 og 1995.
Þar sem héraðsdómstólarnir tóku ekki til starfa fyrr en á miðju ári 1992 og starfsemi þeirra var ekki komin í eðlilegan farveg fyrr en seint á því ári eru tölur um gjaldþrotaskiptabeiðnir frá 1992 vart samanburðarhæfar við tölur síðari ára. Sá kostur var því valinn að láta þær ekki fylgja með í þessu svari.
Beiðnirnar eru annars vegar flokkaðar eftir einstökum héraðsdómstólum og hins vegar eru samtölur fyrir landið allt.
Til frekari fróðleiks fylgja með tölur um beiðnir einstakra innheimtumanna árin 1993–95.
Helstu niðurstöður athugunarinnar eru þessar:
— Héraðsdómstólunum bárust alls 3.054 gjaldþrotaskiptabeiðnir árið 1994 en 2.960 á árinu 1995.
— Héraðsdómstólunum bárust 1.084 gjaldþrotaskiptabeiðnir á hendur einstaklingum frá innheimtumönnum ríkissjóðs árið 1994. Slíkar beiðnir voru 1.461 á árinu 1995.
— Hlutfall gjaldþrotaskiptabeiðna innheimtumanna ríkissjóðs á hendur einstaklingum af öllum gjaldþrotaskiptabeiðnum var 35% árið 1994 en 49% árið 1995.
— Hlutfall gjaldþrotaskiptabeiðna innheimtumanna ríkissjóðs á hendur einstaklingum af öllum gjaldþrotaskiptabeiðnum á hendur einstaklingum var 59% árið 1994 en 71% árið 1995.
Hér á eftir fer samantekt þeirra upplýsinga sem aflað var. Þess ber að gæta að gjaldþrotaskiptabeiðnir til héraðsdóms Reykjavíkur frá árinu 1993 eru ekki með í þessari samantekt og eru tölur um fjölda beiðna frá innheimtumönnum sem einkum beina beiðnum sínum þangað, svo sem Gjaldheimtunni í Reykjavík og tollstjóra, of lágar sem því nemur.
Prentað upp.
(Töflur, ca. 4 síður myndaðar.)