Ferill 334. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 334 . mál.


963. Nefndarálit



um frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur haft til umfjöllunar síðara frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar á þessu þingi. Vinna nefndarinnar við frumvarpið var með hefðbundnu sniði. Formaður og einn nefndarmanna fóru yfir allar umsóknir sem bárust til að kanna hvort þær uppfylltu skilyrði starfsreglna nefndarinnar um veitingu ríkisborgararéttar sem upphaflega voru settar 1955 en hefur verið breytt nokkrum sinnum síðan, síðast í febrúar 1995. Nefndin tók málið síðan fyrir á fundi sínum og mælir hún með samþykkt frumvarpsins með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 14. maí 1996.



Sólveig Pétursdóttir,

Ögmundur Jónasson,

Valgerður Sverrisdóttir.


form.

frsm.



Guðný Guðbjörnsdóttir.

Kristján Pálsson.

Hjálmar Jónsson.



Jón Kristjánsson.

Árni R. Árnason.

Sighvatur Björgvinsson.