Ferill 297. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 297 . mál.


1003. Breytingartillögur



við frv. til l. um fjárreiður ríkisins.

Frá sérnefnd.



    Við 52. gr. Greinin orðist svo:
                  Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1997. Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög nr. 52/1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga, með síðari breytingum og lög nr. 103/1974, um lántökur ríkissjóðs og ríkisfyrirtækja.
    Við bætist ákvæði til bráðabirgða er orðist svo:
                  Þrátt fyrir ákvæði 52. gr. skal frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1997 svo og frumvarp til fjáraukalaga fyrir það ár fylgja ákvæðum laga nr. 52/1966. Sama gildir um uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 1997.