Ferill 527. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 527 . mál.


1148. Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu þriggja samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum.

Frá minni hluta utanríkismálanefndar.



    Minni hluti nefndarinnar gagnrýnir vinnubrögð ríkisstjórnarinnar við undirbúning samningsgerðar um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum. Samráð var ekki haft við Alþingi né hagsmunaaðila fyrr en gengið hafði verið frá helstu efnisatriðum samkomulagsins við Norðmenn. Á fundi nefndarinnar 4. maí sl. var kynnt efni bókunarinnar en minni hlutinn gagnrýnir harðlega að á fundinum var ekki minnst á samninga sem síðan voru gerðir 6. maí við Norðmenn um einhliða veiðiheimildir í íslenskri lögsögu upp á 127 þús. tonn og einhliða heimildir Rússa til veiða á 5.000 tonnum í íslenskri lögsögu. Varðandi veiðiheimildir á Jan Mayen-svæðinu bendir minni hlutinn jafnframt á að Íslendingar eiga sjálfstæðan rétt til veiða við Jan Mayen samkvæmt Jan Mayen-samkomulaginu.
    Samkvæmt samningunum nemur hlutdeild Íslands til veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum aðeins 17,2%. Þarna er um að ræða hættulega lágt hlutfall miðað við eðlilega hlutdeild Íslendinga til veiða á fullorðinni síld sem er á bilinu 30–40% miðað við söguleg og líffræðileg rök.
    Þá gagnrýnir minni hlutinn að samkomulagið byggist að mestum hluta á tilslökunum af hálfu Íslendinga og Færeyinga frá því sem áður hafði verið ákveðið einhliða af þjóðunum. Þannig eykst hlutur Rússa með samkomulaginu og Norðmenn gefa óverulega eftir. Má í þessu sambandi rifja upp að fyrir liggur, m.a. í yfirlýsingum norskra vísindamanna frá 1980, að það voru ekki veiðar Íslendinga á fullorðinni síld sem leiddu til hruns stofnsins á sínum tíma, heldur gegndarlaus rányrkja Norðmanna á seiðum og ungsíld. Gagnrýnir minni hlutinn það að Íslendingar skuli opna landhelgi sína fyrir Norðmönnum og Rússum án þess að fá á móti heimildir til að veiða í lögsögum þeirra ríkja, en eins og áður segir hafa Íslendingar sjálfstæðan rétt til veiða við Jan Mayen.
    Samkvæmt ákvæði liðar 6.2 í bókuninni um verndun, skynsamlega nýtingu og stjórnun veiða á norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi skulu aðilar að samningnum nota niðurstöður vinnuhóps vísindamanna, sem fylgjast á með og meta þróun og dreifingu síldarstofnsins, sem grundvöll samningaviðræðna í framtíðinni um verndun, nýtingu og stjórnun veiða úr stofninum, m.a. vegna hugsanlegra breytinga á leyfðum heildarafla og aflahlutdeild aðila að svo miklu leyti sem dreifing stofnsins réttlætir breytingar á gildandi fyrirkomulagi. Skal við endurskoðun tekið tillit til dreifingar allra hluta stofnsins. Í athugasemdum með tillögunni kemur fram sá skilningur að á grundvelli þessa ákvæðis megi búast við að aflahlutdeild Íslendinga muni aukast á komandi árum ef síld úr stofninum gengur í auknum mæli í íslenska lögsögu. Telur minni hlutinn, þrátt fyrir ákvæði þetta, hætt við að Íslendingar verði lengi bundnir við það hlutfall af veiðanlegum stofni sem nú hefur verið samið um.
    Loks bendir minni hlutinn á að Evrópusambandið átti ekki aðild að samkomulaginu en krefst verulegs kvóta. Því er staðhæfing ríkisstjórnarinnar að samningurinn tryggi heildarstjórn á veiðunum tilhæfulaus.
    Með vísan til þess að margt er gagnrýnivert í málatilbúnaði stjórnvalda við undirbúning samninganna og veikleika í efnisþáttum þeirrar bókunar sem fylgir endanlegum samningi telur minni hlutinn rétt að ríkisstjórnin og meiri hlutinn beri ábyrgð á afgreiðslu málsins og situr því hjá við afgreiðslu þess.

Alþingi, 31. maí 1996.



Hjörleifur Guttormsson,

Össur Skarphéðinsson.

Ásta R. Jóhannesdóttir.


frsm.