Ferill 445. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 445 . mál.


1149. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 3. júní.)



1. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
    Í stað orðanna „í 3. gr.“ í 1. mgr. kemur: í viðauka I við lög þessi.
         Við 1. mgr. bætist nýr málsliður er orðast svo: Sala á gjaldskyldri vöru til varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, sbr. lög nr. 110/1951, telst sala úr landi í skilningi laga þessara.
         Orðin „og gilda ákvæði þeirra jafnframt um úrskurðarvald í ágreiningsmálum um tollflokkun vara“ í 2. mgr. falla brott.

2. gr.


    3. gr. laganna orðast svo:
    Vörugjald skal reiknað með tvenns konar hætti; annars vegar sem tiltekin fjárhæð fyrir hvert kílógramm eða hvern lítra af gjaldskyldri vöru (magngjald), en hins vegar sem tiltekið hlutfall af verðmæti gjaldskyldrar vöru (verðgjald).
    Af vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í A-lið í viðauka I, skal greiða tiltekna fjárhæð fyrir hvert kílógramm af vörunni án umbúða, eftir því sem nánar er kveðið á um í viðaukanum.
    Af vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í B-lið í viðauka I, skal greiða tiltekna fjárhæð fyrir hvern lítra af vörunni, eftir því sem nánar er kveðið á um í viðaukanum.
    Af vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í C–F-liðum í viðauka I, skal greiða gjald af verðmæti vöru sem hér segir:
    15% af vörum sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í C-lið.
    20% af vörum sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í D-lið.
    25% af vörum sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í E-lið.
    30% af vörum sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í F-lið.

3. gr.


    Eftirfarandi breyting verður á 4. gr. laganna:
    2. málsl. 2. tölul. 1. mgr. fellur brott.
    Við 1. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Aðilum sem skráðir hafa verið sérstakri skráningu skv. 5. gr.
         1. málsl. 2. mgr. orðast svo: Aðilar, sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr., aðrir en þeir sem flytja vörur til landsins til eigin nota, skulu ótilkvaddir og eigi síðar en 15 dögum áður en vörugjaldsskyld starfsemi hefst tilkynna atvinnurekstur sinn eða starfsemi til skráningar hjá skattstjóra þar sem aðilar eiga lögheimili.

4. gr.


    Við lögin bætist ný grein sem verður 5. gr. laganna og orðast svo:
    Aðilar, sem flytja inn eða kaupa innan lands gjaldskyldar vörur til heildsölu, geta fengið sérstaka skráningu hjá skattstjóra. Skilyrði slíkrar skráningar eru:
    Að aðili hafi heildsöluleyfi.
    Að aðili haldi sérstakt birgðabókhald yfir þær vörur sem vegna skráningarinnar lúta sérreglum um uppgjör vörugjalds í samræmi við reglur sem ríkisskattstjóri setur.
    Aðila, sem fengið hefur sérstaka skráningu, er heimilt að flytja gjaldskyldar vörur inn til landsins eða kaupa gjaldskyldar vörur innan lands af framleiðanda eða af öðrum sérstaklega skráðum aðila án þess að skylda stofnist til greiðslu vörugjalds, sbr. 4. mgr. 9. gr.
    Innlendum framleiðendum og aðilum sem fengið hafa sérstaka skráningu er heimil sala eða afhending á gjaldskyldum vörum án vörugjalds til aðila sem skráðir eru samkvæmt þessari grein.
    Þegar aðili, sem fengið hefur sérstaka skráningu, kaupir gjaldskyldar vörur án vörugjalds skal tilgreina á sölureikningum það magn eða það verð sem myndar gjaldstofn vörugjalds.

5. gr.


    5. gr. laganna, sem verður 6. gr., ásamt fyrirsögn orðast svo:

Gjaldstofn verðgjalds.


    Gjaldstofn vörugjalds af innfluttum vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í C–F-liðum í viðauka I, er tollverð þeirra eins og það er ákveðið í 8.–10. gr. tollalaga, að viðbættum tollum eins og þeir eru ákveðnir samkvæmt þeim lögum.

6. gr.


    6. gr. laganna, sem verður 7. gr., orðast svo:
    Gjaldstofn vörugjalds af innlendum framleiðsluvörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í C–F-liðum í viðauka I, er verksmiðjuverð þeirra.
    Verksmiðjuverð er söluverð vöru frá framleiðanda, þ.e. það verð sem kaupandi greiðir eða ber að greiða við kaup á vöru af framleiðanda án frádráttar nokkurs kostnaðar eða þjónustugjalds.
    Samsvari verksmiðjuverð ekki heildarandvirði vöru, t.d. vegna þess að kaupandi eða annar framleiðandi leggur til hráefni, efnivörur eða annað verðmæti sem vörugjald hefur ekki þegar verið greitt af, skal heildarandvirði vörunnar teljast gjaldstofn til vörugjalds.
    Ef framleiðandi er jafnframt heildsali eða smásali vöru eða ef verksmiðjuverð vöru liggur ekki fyrir af öðrum ástæðum skal gjaldstofn vera almennt gangverð á sömu eða sams konar vöru við sölu frá framleiðendum. Ef slíkt almennt gangverð liggur ekki fyrir skal gjaldstofn vera verksmiðjuverð framleiðanda á sömu eða sams konar vöru í sambærilegum viðskiptum við óháða aðila.
    Ef framleiðandi og kaupandi eru háðir hvor öðrum í skilningi 2. mgr. 8. gr. tollalaga er skattyfirvöldum heimilt að ákvarða gjaldstofn samkvæmt ákvæðum 4. mgr. Ríkisskattstjóri skal gefa út reglur um mat til verðs samkvæmt þessari málsgrein.

7. gr.


    7. gr. laganna, sem verður 8. gr., orðast svo:
    Tollstjórar skulu reikna vörugjald af gjaldskyldum vörum sem aðilar, aðrir en þeir sem skráðir hafa verið skv. 5. gr., flytja til landsins.

8. gr.


    8. gr. laganna, sem verður 9. gr., orðast svo:
    Hvert uppgjörstímabil aðila sem skráðir eru skv. 2. mgr. 4. gr. er tveir mánuðir, desember og janúar, febrúar og mars, apríl og maí, júní og júlí, ágúst og september, október og nóvember. Gjalddagi hvers uppgjörstímabils er 15. dagur annars mánaðar eftir lok þess.
    Innflytjendur, sem flytja vörur til landsins til endursölu, aðrir en þeir sem jafnframt eru skráðir skv. 5. gr., skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af gjaldskyldum vörum sem voru tollafgreiddar á uppgjörstímabilinu. Aðilar, sem flytja gjaldskylda vöru til landsins til eigin nota, skulu greiða vörugjald við tollafgreiðslu.
    Innlendir framleiðendur skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af gjaldskyldum vörum sem voru seldar eða afhentar á tímabilinu. Þó skal ekki greiða vörugjald af vörum sem voru seldar án vörugjalds til skráðra aðila skv. 5. gr.
    Aðilar, sem skráðir eru skv. 5. gr., skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af þeim vörum sem þeir hafa keypt eða fengið tollafgreiddar á tímabilinu eða voru til staðar í birgðum í upphafi uppgjörstímabils en eru ekki til staðar í birgðum við lok uppgjörstímabils samkvæmt birgðabókhaldi. Þó skal hvorki greiða vörugjald af þeim vörum sem vörugjald hefur þegar verið greitt af né af vörum sem voru seldar án vörugjalds til annarra skráðra aðila skv. 5. gr.
    Gjaldskyldir aðilar skv. 2. og 3. tölul. 1. mgr. 4. gr. skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils skila vörugjaldsskýrslu í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður vegna vara sem greiða ber vörugjald af á uppgjörstímabilinu. Jafnframt skal tilgreina í skýrslunni sölu á gjaldskyldum vörum án vörugjalds til aðila sem eru skráðir skv. 5. gr. Skattstjóri skal áætla vörugjald af viðskiptum þeirra aðila sem ekki skila skýrslu innan tilskilins tíma, senda enga skýrslu eða ef skýrslu eða fylgigögnum er ábótavant. Skattstjóri skal tilkynna innheimtumanni og gjaldskyldum aðila um áætlanir og leiðréttingar sem gerðar hafa verið.
    Sé vörugjald ekki greitt á tilskildum tíma skal aðili sæta álagi til viðbótar því vörugjaldi sem honum ber að standa skil á. Sama gildir ef vörugjaldsskýrslu hefur ekki verið skilað eða henni er ábótavant og vörugjald því áætlað, nema aðili hafi greitt fyrir gjalddaga vörugjaldsins upphæð er til áætlunar svarar eða gefið fyrir lok kærufrests fullnægjandi skýringu á vafaatriðum. Álag skal vera 1% af þeirri upphæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 10%.
    Sé vörugjald ekki greitt innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir vaxtalögum, nr. 25/1987, með síðari breytingum.

9. gr.


    9. gr. laganna, sem verður 10. gr., orðast svo:
    Við skil á vörugjaldi í ríkissjóð er gjaldanda heimilt að draga frá það vörugjald sem hann hefur sannanlega greitt við kaup á hráefni og efnivöru til gjaldskyldrar framleiðslu á viðkomandi uppgjörstímabili, hvort sem varan er seld innan lands með vörugjaldi eða úr landi án vörugjalds.
    Sé vörugjald af aðföngum hærra á uppgjörstímabili en vörugjald af sölu skal mismunur endurgreiddur úr ríkissjóði. Hafi vörugjaldsskýrslu verið skilað á tilskildum tíma skal endurgreiðsla fara fram innan 15 daga frá lokum skilafrests.

10. gr.


    Við lögin bætist ný grein sem verður 11. gr. og orðast svo:
    Heimilt er að kæra álagningu vörugjalds innan 30 daga frá gjalddaga gjaldsins. Kæru skal beint til þess tollstjóra eða þess skattstjóra sem annaðist álagningu gjaldsins. Kæru skal fylgja skriflegur rökstuðningur. Innsend fullnægjandi vörugjaldsskýrsla skal tekin sem kæra þegar um er að ræða áætlanir skv. 5. mgr. 9. gr. Tollstjóri eða skattstjóri skal kveða upp skriflegan rökstuddan úrskurð um kæruna og tilkynna hann í ábyrgðarbréfi innan 30 daga frá lokum kærufrests.
    Gjaldskyldur aðili og ríkistollstjóri geta skotið úrskurði tollstjóra skv. 1. mgr. til ríkistollanefndar sem kveður upp fullnaðarúrskurð. Um kærufresti og málsmeðferð fer eftir ákvæðum 101. gr. tollalaga.
    Gjaldskyldur aðili og ríkisskattstjóri geta skotið úrskurði skattstjóra skv. 1. mgr. til yfirskattanefndar sem kveður upp fullnaðarúrskurð. Um kærufresti og málsmeðferð fer eftir ákvæðum 2.–7. mgr. 29. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

11. gr.


    10. gr. laganna, sem verður 12. gr., orðast svo:
    Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum um gjaldskyldu, álagningu, tilhögun bókhalds, eftirlit, viðurlög og aðra framkvæmd varðandi vörugjald skulu gilda, eftir því sem við geta átt, ákvæði tollalaga og laga um virðisaukaskatt.

12. gr.

    Í stað orðanna „3. gr.“ tvívegis í síðari málslið 1. mgr. 11. gr. laganna, er verður 13. gr. þeirra, kemur: viðauka I.

13. gr.


    Viðauki við lögin orðast svo:

Viðauki I við lög um vörugjald.


A.    Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða í vörugjald krónur fyrir hvert kílógramm af vörunni án umbúða sem hér segir:

Tollskrárnúmer     kr./kg
Tollskrárnúmer
kr./kg Tollskrárnúmer kr./kg
    
0813.4001
80

0813.5001
80

0901.1100
28

0901.1200
28

0901.2101
35

0901.2109
35

0901.2201
35

0901.2209
35

0901.9000
35

0902.1000
35

0902.2000
35

0902.3000
35

0902.4000
35

0903.0000
35

0909.1001
80

0909.5001
80

1211.9001
80

1211.9002
80

1701.1100
30

1701.1200
30

1701.9101
30

1701.9102
30

1701.9103
30

1701.9104
30

1701.9105
30

1701.9106
30

1701.9107
30

1701.9109
30

1701.9901
30

1701.9902
30

1701.9903
30

1701.9904
30

1701.9905
30

1701.9906
30

1701.9907
30

1701.9909
30

1702.1100
30

1702.1900
30

1702.2000
30

1702.3001
30

1702.3002
30

1702.3009
30

1702.4001
30

1702.4002
30

1702.4009
30

1702.5000
30

1702.6000
30

1702.9001
30

1702.9002
30

1702.9003
30

1702.9004
30

1702.9009
30

1703.1002
30

1703.1009
30

1703.9009
30

1704.1000
65

1704.9001
65

1704.9002
65

1704.9003
65

1704.9004
65

1704.9005
65

1704.9006
65

1704.9007
65

1704.9009
65

1805.0001
15

1805.0009
15

1806.1000
65

1806.2001
65

1806.2003
65

1806.2004
65

1806.2005
65

1806.2006
65

1806.2009
65

1806.3101
65

1806.3109
65

1806.3201
65

1806.3202
65

1806.3203
65

1806.3209
65

1806.9011
15

1806.9012
15

1806.9019
15

1806.9023
65

1806.9024
65

1806.9025
65

1806.9026
65

1806.9027
65

1806.9028
65

1806.9029
65

1806.9039
65

1901.9011
15

1901.9019
15

1904.1001
40

1905.2000
40

1905.3011
40

1905.3019
40

1905.3021
40

1905.3029
40

1905.3030
40

1905.9030
20

1905.9060
20

2005.2003
20

2006.0011
12

2006.0012
12

2006.0019
12

2006.0021
12

2006.0022
12

2006.0023
12

2006.0029
12

2006.0030
12

2007.1000
12

2007.9100
12

2007.9900
12

2008.1101
12

2008.1109
12

2008.1900
12

2008.2001
12

2008.2009
12

2008.3001
12

2008.3009
12

2008.4001
12

2008.4009
12

2008.5001
12

2008.5009
12

2008.6001
12

2008.6009
12

2008.7001
12

2008.7009
12

2008.8001
12

2008.8009
12

2008.9100
12

2008.9201
12

2008.9209
12

2008.9901
12

2008.9902
12

2008.9909
12

2101.1100
80

2101.1201
80

2101.1209
80

2101.2001
80

2101.2009
80

2101.3001
80

2101.3009
80

2106.9021
400

2106.9022
30

2106.9023
80

2106.9024
80

2106.9025
80

2106.9026
80

2106.9031
25

2106.9039
80

2106.9041
25

2106.9042
25

2106.9048
25

2106.9049
25

2106.9061
65

2106.9062
12

2106.9063
30

3003.9001
65

3004.5004
65

3004.9004
65

3302.1021
65
    
3302.1029
65

3302.1030
65

4011.1000
20

4011.2000
20

4011.4000
20

4011.5000
20

4011.9100
20

4011.9900
20

4012.1000
20

4012.2000
20

4012.9000
20

4013.1000
20

4013.2000
20

4013.9000
20

4016.9922
20

4016.9925
20
B.         Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða í vörugjald krónur fyrir hvern lítra af vörunni sem hér segir:

Tollskrárnúmer     kr./l
Tollskrárnúmer
kr./l Tollskrárnúmer kr./l

2009.1101
9

2009.1109
9

2009.1901
9

2009.1909
9

2009.2001
9

2009.2009
9

2009.3001
9

2009.3009
9

2009.4001
9

2009.4009
9

2009.5001
9

2009.5009
9

2009.6001
9

2009.6009
9

2009.7001
9

2009.7009
9

2009.8001
9

2009.8009
9

2009.9001
9

2009.9009
9

2105.0011
9

2105.0019
9

2105.0021
9

2105.0029
9

2106.9011
9

2106.9019
9

2201.1000
9

2202.1001
9

2202.1002
9

2202.1009
9

2202.9001
9

2202.9002
9

2202.9009
9

2203.0001
9

2204.1001
9

2204.2111
9

2204.2121
9

2204.2131
9

2204.2141
9

2204.2151
9

2204.2161
9

2204.2911
9

2204.2921
9

2204.2931
9

2204.2941
9

2204.2951
9

2204.2961
9

2204.3001
9

2205.1001
9

2205.9001
9

2206.0001
9

2206.0009
9

2208.9091
9

2209.0000
9
C.         Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða 15% vörugjald:
    
3303.0001
3303.0002
3304.1000
3304.2000
3304.3000
3304.9100
3304.9900
3305.2000
3305.3000
3305.9000
3307.1000
3307.2000
3307.3000
3307.4100
3307.4900
3307.9002
3307.9009
3701.2000
3701.9109
3701.9909
3702.2000
3702.3100
3702.3200
3702.3909
3702.4402
3702.5100
3702.5200
3702.5300
3702.5400
3702.5500
3702.5600
3702.9100
3702.9200
3702.9300
3702.9400
3702.9500
3918.1001
3918.1002
3918.9011
3918.9019
3918.9021
3918.9029
3919.9010
3920.1002
3920.2001
3920.3001
3920.4101
3920.4202
3920.5101
3920.5901
3920.6101
3920.6201
3920.6301
3920.6901
3920.7101
3920.7301
3920.7901
3920.9101
3920.9401
3920.9902
3922.1000
3922.2000
3922.9001
3922.9009
3925.9002
3926.3001
4003.0001
4008.1101
4008.2101
4016.9100
4016.9918
4016.9919
4016.9925
4407.1001
4407.2401
4407.2501
4407.2601
4407.2901
4407.9101
4407.9201
4407.9901
4409.1001
4409.2001
4410.1101
4410.1901
4410.9001
4411.1101
4411.1901
4411.2101
4411.2901
4411.3101
4411.3901
4411.9101
4411.9901
4412.1301
4412.1401
4412.1901
4412.2201
4412.2301
4412.2901
4412.9201
4412.9301
4412.9901
4413.0001
4418.3000
4504.1002
4601.2000
4815.0000
5602.9001
5701.1000
5701.9000
5702.1000
5702.2000
5702.3100
5702.3200
5702.3900
5702.4100
5702.4200
5702.4900
5702.5100
5702.5200
5702.5900
5702.9100
5702.9200
5702.9900
5703.1001
5703.1009
5703.2001
5703.2009
5703.3001
5703.3009
5703.9001
5703.9009
5704.1000
5704.9000
5705.0001
5705.0009
5805.0000
5904.1000
5904.9100
5904.9200
6702.1000
6702.9000
6802.1000
6802.2109
6802.2209
6802.2309
6802.2909
6802.9109
6802.9209
6802.9309
6802.9909
6803.0000
6806.2000
6806.9001
6806.9009
6807.1001
6807.9001
6808.0000
6809.1101
6809.1901
6809.9001
6809.9009
6811.2001
6811.9001
6811.9009
6814.1000
6904.9000
6905.1000
6905.9000
6907.1000
6907.9000
6908.1000
6908.9000
6910.1000
6910.9000
7007.1101
7007.2101
7009.1000
7014.0001
7315.9001
7320.1000
7320.2001
7320.9001
7324.1000
7324.2100
7324.2900
7324.9000
7417.0000
7418.2000
7419.9904
7615.2000
8301.2000
8301.4001
8302.1001
8302.3000
8302.4901
8407.3100
8407.3200
8407.3300
8407.3400
8408.2000
8426.1201
8426.1209
8426.1900
8426.2000
8426.3000
8426.4101
8426.4109
8426.4900
8426.9100
8426.9900
8428.1001
8428.4000
8431.3100
8481.1000
8481.2000
8481.3000
8481.4000
8481.8000
8481.9000
8507.1000
8507.2000
8507.3009
8507.4000
8507.8000
8507.9000
8535.1000
8535.2100
8535.2900
8535.3000
8535.4000
8535.9000
8536.1000
8536.20008536.3000
8536.4100
8536.4900
8536.5000
8536.6100
8536.6900
8536.9000
8537.1009
8537.2000
8538.1000
8538.9000
8539.1000
8539.2100
8539.2200
8539.2900
8539.3100
8539.3200
8539.3900
8539.4100
8539.4900
8539.9000
8540.1100
8540.1200
8540.2000
8540.4000
8540.5000
8540.6000
8540.7100
8540.7200
8540.7900
8540.8100
8540.8900
8540.9100
8540.9900
8544.1100
8544.1900
8544.2009
8544.3000
8544.4100
8544.4900
8544.5100
8544.5900
8544.6000
8544.7000
8714.1100
8714.1900
8716.8001
8716.8009
8716.9009
9007.1100
9007.1900
9007.2001
9007.2009
9007.9100
9007.9200
9405.1001
9405.1009
9405.2001
9405.2009
9405.3000
9405.4001
9405.4009
9405.5000
9405.6001
9405.6009
9405.9101
9405.9109
9405.9201
9405.9202
9405.9209
9405.9910
9405.9921
9405.9929 D.     Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða 20% vörugjald:

7321.1100
7321.1200
7321.1300
7321.8100
7321.8200
7321.8300
7321.9000
8418.1001
8418.2100
8418.2200
8418.2900
8418.3001
8418.4001
8418.6101
8418.6901
8421.1201
8421.3901
8422.1100
8433.1100
8433.1900
8450.1100
8450.1200
8450.1900
8450.9000
8451.1009
8451.2100
8451.3001
8476.2100
8476.2900
8476.8100
8476.8900
8476.9000
8479.6001
8479.8901
8511.1000
8511.2000
8511.3000
8511.4000
8511.5000
8511.8000
8511.9000
8516.5000
8516.6001
8516.6002
8516.6009
8516.7901
8516.7909
8516.8001
8544.3000
8545.9001
8708.1000
8708.2900
8708.3100
8708.3900
8708.4000
8708.5000
8708.6000
8708.7000
8708.8000
8708.9100
8708.9300
8708.9400
8708.9900
9608.1000
9608.2000
9608.3100
9608.3900
9608.4000
9608.5000
9608.6000
9608.9100
9608.9900
9609.1000
9609.2000
9609.9000E.         Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða 25% vörugjald:

8517.1901
8518.2109
8518.2209
8518.2900
8518.3000
8518.4009
8518.5009
8518.9000
8519.1000
8519.2100
8519.2900
8519.3100
8519.3900
8519.4000
8519.9200
8519.9300
8519.9901
8519.9902
8519.9909
8520.1000
8520.2000
8520.3200
8520.3300
8520.3900
8520.9001
8520.9009
8521.1021
8521.1029
8521.9021
8521.9029
8522.1000
8522.9000F.         Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða 30% vörugjald:

8527.1201
8527.1209
8527.1301
8527.1302
8527.1309
8527.1900
8527.2101
8527.2102
8527.2109
8527.29008527.31018527.3102
8527.3109
8527.3200
8527.3900
8527.9009
8528.1202
8528.1209
8528.1302
8528.1309
8528.2109
8528.2209
8528.3009
8529.1009
8529.9009
8543.8001
8543.8901
8543.9001
9301.0000
9302.0000
9303.1000
9303.2000
9303.3000
9303.9009
9304.0000
9305.1000
9305.2100
9305.2900
9305.9000
9306.1000
9306.2100
9306.2900
9306.3009
9306.9009
9307.0000

14. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1996. Ákvæði þeirra skulu taka til allra vara sem þá eru ótollafgreiddar, þó ekki vara sem afhentar hafa verið með bráðabirgðatollafgreiðslu.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Allir þeir sem framleiða eða flytja til landsins vöru sem skattskyld er samkvæmt lögum þessum og eru ekki skráðir á vörugjaldsskrá skv. 2. mgr. 4. gr. laganna við gildistöku laga þessara skulu tilkynna innan 15 daga frá því að lög þessi öðlast gildi um rekstur sinn og starfsemi til skattstjóra eða tollstjóra þar sem þeir eiga lögheimili.
    Þrátt fyrir ákvæði 8. gr. skal fyrsta uppgjörstímabil vörugjalds samkvæmt lögum þessum vera þrír mánuðir, júlí, ágúst og september 1996.